Sport

Sigur­ganga Kol­beins hélt á­fram: Finninn treysti sér ekki út í sjö­ttu lotu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kolbeinn Kristinsson hélt sigurgöngu sinni áfram í Finnlandi.
Kolbeinn Kristinsson hélt sigurgöngu sinni áfram í Finnlandi. kolli

Íslenski hnefaleikakappinn Kolbeinn Kristinsson hélt sigurgöngu sinni áfram í hnefaleikahringnum í kvöld með frábærum sigri á heimamanni.

Kolbeinn vann þá Finnann Mika Mielonen með sannfærandi hætti en bardaginn fór fram í Kisahalli höllinni í Helsinki.

Það tók Kolbein fimm lotur að klára þann finnska. Mielonen treysti sér ekki út í sjöttu lotu og gaf bardagann.

Kolbeinn hefur unnið alla sextán bardaga sína þar af tíu þeirra með rothöggi.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×