Sport

Sjáðu Kolla pakka Finnanum saman

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kolbeinn með beltið sem hann fékk eftir bardagann.
Kolbeinn með beltið sem hann fékk eftir bardagann.

Íslenski hnefaleikakappinn Kolbeinn „Icebear“ Kristinsson er enn taplaus í hringnum.

Í gær vann okkar maður sannfærandi sigur á Finnanum Mika Mielonen í Helsinki.

Eftir að hafa lumbrað á Finnanum í fimm lotur gafst sá finnski upp og kastaði inn hvíta handklæðinu í byrjun sjöttu lotu.

Kolbeinn hefur nú unnið alla sextán bardaga sína á ferlinum og þar af tíu með rothöggi.

Hér að neðan má sjá svipmyndir af Kolbeini í bardaganum.

Klippa: Kolli Kristins gegn Mika Mielonen
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×