Sport

Dag­skráin í dag: Ís­lensku landsliðin í eld­línunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson sló markamet Eiðs Smára Guðjohnsen og Kolbeins Sigþórssonar þegar hann spilaði síðast með landsliðinu í fyrra.
Gylfi Þór Sigurðsson sló markamet Eiðs Smára Guðjohnsen og Kolbeins Sigþórssonar þegar hann spilaði síðast með landsliðinu í fyrra. vísir/Hulda Margrét

Íslensku karlalandsliðin í knattspyrnu eru í aðalhlutverki á sportstöðvunum í dag en þá byrja A-landsliðsstrákarnir okkar nýja Þjóðadeild á Laugardalsvellinum og 21 árs strákarnir mæta Dönum.

Íslenska A-landsliðið tekur á móti Svartfjallalandi og verður ítarleg umfjöllun um leikinn á Stöð 2 Sport.

Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18.15 á Stöð 2 Sport en leikurinn fer síðan af stað hálftíma síðar. Eftir leikinn verður síðan leikurinn gerður upp á sömu stöð.

Fyrr um daginn verður einnig sýnt beint frá leik Íslands og Danmerkur í Undankeppni EM 21 árs landsliða.

Það eru líka sýndir beint aðrir leikir í Þjóðadeildinni þar á meðal heimsókn hins sjóðheita Erlings Haaland til Kasakstan.

Kvöldið endar eins og mörg önnur í vikunni með leik úr bandarísku hafnaboltadeildinni.

Stöð 2 Sport

Klukkan 14:50 hefst bein útsending frá leik Íslands og Danmerkur í undankeppni Evrópumóts 21 árs landsliða.

Klukkan 18.15 hefst upphitun fyrir leik Íslands og Svartfjallalands í Þjóðadeild UEFA.

Klukkan 18:35 hefst bein útsending frá leik Íslands og Svartfjallalands í Þjóðadeild UEFA.

Klukkan 20.45 hefst uppgjör um leik Íslands og Svartfjallalands í Þjóðadeild UEFA.

Vodafone Sport

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik Kasakstan og Noregs í Þjóðadeild UEFA.

Klukkan 15.55 hefst bein útsending frá leik Litháens og Kýpur í Þjóðadeild UEFA.

Klukkan 18.35 hefst bein útsending frá leik Frakklands og Ítalíu í Þjóðadeild UEFA.

Klukkan 23.00 hefst bein útsending frá leik Atlanta Braves og Toronto Blue Jays í bandarísku MLB deildinni í hafnabolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×