Lífið

Rich Homie Quan er allur

Jón Þór Stefánsson skrifar
Rich Homie Quan sagðist eiga fullt af tónlist sem ætti eftir að gefa út.
Rich Homie Quan sagðist eiga fullt af tónlist sem ætti eftir að gefa út. Getty

Bandaríski rapparinn Rich Homie Quan er látinn 33 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Atlanta í gær, en dánarorsök liggur ekki fyrir að svo stöddu.

Quan, sem hét réttu nafni Dequantes Devontay Lamar, var gríðarlega vinsæll um miðjan annan áratug þessarar aldar.

Hann vakti bæði athygli sem meðlimur rappsveitarinnar Rich Gang, en líka sem sólólistamaður. Hann skaust upp á stjörnuhimininn árið 2013 með útgáfu lagsins Type of Way en hafði áður orðið slegið í gegn í heimaborg sinni, Atlanta.

Rich Homie Quan gaf út sína einu breiðskífu árið 2018, Rich as in Spirit.

Viðtal við Quan birtist á YouTube í fyrradag, daginn áður en hann lést. 

Þar sagðist hann búa yfir ofgnótt af óútgefinni tónlist. Hann gaf ekki upp hvenær hann hyggðist gefa tónlistina út, en ekki seinna en fjórða október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×