Lífið

Stjörnulífið: Ás­dís Rán í Playboy-höllinni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.

Síðastliðin vika var heldur betur viðburðarík hjá íslensku stjörnunum. Ástin, utanlandsferðir og Októberfest voru í aðalhlutverki um helgina.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Brúðkaup í sólinni

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fagnaði ástinni í brúðkaupi góðra vina um helgina.

Heimsókn á Bessastaði

Helgi Ómars ljósmyndari og áhrifavaldur fór í heimsókn til Höllu Tómasdóttur forseta á Bessastaði.

Októberfest

Krist­all Máni Inga­son og Eyþór Wöhler, meðliðir hljóm­sveit­ar­inn­ar Hubba Bubba, komu fram á Októ­ber­fest um helg­ina.

Glæsileg!

Tónlistarkonan Guðrún Eyfjörð eða GDRN, birti skísumynd og var stórglæsileg. GDRN kom meðal annars fram á Októberfest um helgina.

Ástfangin í 24 ár

Skemmtikrafturinn Eva Ruza Miljevic og eiginmaður hennar Sigurður, fögnuðu 24 ára sambandafmæli sínu í vikunni.

„Það besta sem kom fyrir mig í lífinu var hann Siggi minn, því með honum hefur lífið verið fallegt og gott,“ skrifar Eva meðal annars við færsluna.

Netflix-draumur

Rúrik Gísla­son, fyrrverandi knattspyrnumaður og fyrirsæta, greindi frá því fyrr í vik­unni að hann væri byrjaður í tökum á nýrri kvikmynd sem er væntanleg á Netflix.

„Í tök­um fyr­ir fyrstu Net­flix mynd­ina mína! Ég er ótrú­lega spennt­ur að geta loks­ins til­kynnt að ég sé að leika eitt af aðal­hlut­verk­un­um í Net­flix kvik­mynd,“ skrifaði Rúrik.

Ljúfur ágúst

Fegurðardrottningin Íris Freyja Salguero fer yfir ágúst-mánuð.

Flottur í bleiku

Raunveruleikastjarnan Binni Glee fagnaði 25 ára afmæli sínu um helgina með pompi og prakt klæddur bleikur samfesting.

Stóra eplið 

Tinna Brá Baldvinsdóttir og Ari Eldjárn skemmtikraftur nutu sólarinnar í New York í vikunni þegar þau fögnuðu 43 ára afmæli Ara.

Guðmundur Birkir Pálmason, þekktur sem Gummi kíró, spókaði sig einnig um götur New York. 

Gellustælar í sólinni

Áhrifavaldurinn Guðrún Svava Eg­ils­dótt­ir, gjarnan þekkt sem Gugga í gúmmíbát, nýtur sólarinnar í Króatíu.

Eins árs verðlaunaplata

Grammy verðlaunahafinn og ein frægasta söngkona okkar Íslendinga Laufey Lín fagnar eins árs afmæli plötunnar Bewitched. 

Fyrsta sólarhringinn eftir að platan var gefin út var henni streymt 5,7 milljón sinnum, en það er langmesta spilun sem djassplata hefur fengið á tónlistarveitunni á fyrsta sólarhring eftir útgáfu.

Förðun í skrefum

Embla Wigum, förðunarfræðingur og áhrifavaldur, sýndi frá því í skrefum hvernig hún gerir sig til fyrir daginn.  

Köben-fílíngur

Elísabetu Gunnars, tískudrottningu og athafnakonu, leið eins og hún væri í Köben þegar hún settist fyrir utan sætan vetitingastað í höfuðborginni.

Á ferð og flugi

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason segist vera virkur í lífinu.

Play-höllin

Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir rifjaði upp gamla tíma í Playboy-höllinni frá árinu 2009.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: „Reynum að koma heilir til baka“

Haustið er formlega gengið í garð og heiðraði höfuðborgarbúa með gulri veðurviðvörun um helgina. Stjörnur landsins létu veðrið ekki stoppa sig og skemmtu sér á tónleikum, í brúðkaupum eða í veiði.

Stjörnulífið: Maraþon, ástin og seiðandi kroppar í sólinni

Liðin vika var með eindæmum viðburðarrík hjá stjörnum landsins. Mannlífið iðaði um helgina þar sem Menningarnótt var haldin hátíðlega með fjölbreyttri dagskrá. Sömuleiðis reimuðu fjölmargir á sig hlaupaskóna og tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Þá var ástin og rómantíkin áberandi á samfélagsmiðlum. 

Stjörnulífið: Stjörnubrúðkaup og Áslaug Arna í golfi

Síðastliðin vika var afar viðburðarrík hjá stjörnum landins. Ungfrú Ísland var krýnd í Gamla bíói síðastliðið miðvikudagskvöld, ástin umvafði helgina með stjörnubrúðkaupum og sólin lét sjá sig í höfuðborginni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×