Lífið

Skvísupartý í skart­gripa­verslun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Guðbjörg Gissurardóttir. Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og María Kjartansdóttir fögnuðu nýrri skartgripalínu Eddu Bergsteinsdóttur í versluninni Prakt. 
Guðbjörg Gissurardóttir. Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og María Kjartansdóttir fögnuðu nýrri skartgripalínu Eddu Bergsteinsdóttur í versluninni Prakt.  Harpa Hrund Bjarnadóttir

„Mig langaði að fagna þessum áfanga með konum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina,“ segir gullsmiðurinn Edda Bergsteinsdóttir sem fagnaði nýrri skartgripalínu sinni með pomp og prakt í versluninni Prakt á Laugaveginum á dögunum.

Það var góð stemning og gleði sem ríkti í teitinu þar sem Edda fagnaði frumsýningu á skartgripalínunni Slaufu.

„Mig langaði að fagna þessum áfanga með konum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina og bauð þeim að koma og þiggja léttar veitingar og njóta sérstakra kjara á skartgripum frá Prakt.

Nýja hönnunin ber heitið Slaufa og bætist Slaufa við fjölbreytt skartgripa úrval geómetrísku SEB skartgripanna sem ég hef hannað frá því árið 2014.“

Formin hafa löngum heillað Eddu. 

„Mér finnst áhugavert að taka fyrir form hvort sem þau er líffræðileg eða manngerð og einfalda þau yfir í geómetrísk form einfaldleikans, að gera flókna hluti einfalda, að segja mikið með fáum línum.

Ég hef líka gaman af sögu og táknum og kynnti mér sögu slaufunnar með fram hönnunarferlinu. Í framhaldi af útgáfu slaufunnar langar mig að vinna áfram með manngerð tákn en hingað til hefur áherslan í SEB verið á húsdýr, fugla og fiðrildi, sem sagt á lífræn form.“

Slaufan er að sögn Eddu fornt tákn um styrk, tengsl, tryggð og fegurð.

„Þessi fallegi hnútur hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda og þjónað bæði hagnýtum og táknrænum tilgangi. Í sögu tískunnar er slaufan menningarlega mikilvæg og fyrir löngu orðinn órjúfanlegur partur af tískunni. 

Þetta klassíska form birtist hér í stílhreinni geómetríu þar sem báðar hliðar slaufunnar mynda samhverft form.“

Allir skartgripirnir frá Eddu eru smíðaðir á verkstæðinu að Laugavegi 82 þar sem hún og eiginmaður hennar Þorbergur Halldórsson gullsmiður hafa rekið verslunina Prakt frá því vorið 2020.

Ljósmyndarinn Harpa Hrund Bjarnadóttir mætti og myndaði stemninguna hjá skvísunum. Hér má sjá nokkrar vel valdnar myndir: 

Edda Bergsteinsdóttir fagnaði nýrri skartgripalínu með skvísupartýi.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Guðbjörg Gissurardóttir, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og Halla Bogadóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Emilía Ósk Bjarnadóttir og Erna Lúðvíksdóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Anita Sauckel, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Andrea Arna Gylfadóttir og Guðný Hafsteinsdóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Katrín Þóra Albertsdóttir og Edda Bergsteinsdóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Ellisif Bjarnadóttir og Anita Sauckel.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Ólöf Erla Bjarnadóttir og Örk Guðmundsdóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Andrea Arna Gylfadóttir og Berglind Guðmundsdóttir virða fyrir sér nýju línuna.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Guðbjörg Gissurardóttir. Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og María Kjartansdóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Erna LúðvíksdóttirHarpa Hrund Bjarnadóttir
Edda Bergsteinsdóttir, Erna Lúðvíksdóttir og Helga Bogadóttir skoða skartið gaumgæfilega.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Guðrún Tinna Valdimarsdóttir, Sandra Guðmundsdóttir og Borghildur Valgeirsdóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Katrín Þóra Albertsdóttir og Emilía Ósk Bjarnadóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Emilía Ósk Bjarnadóttir, Erna Lúðvíksdóttir og Helga Bogadóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Anita Sauckel og Ellisif Bjarnadóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Skvísur að máta skart.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og Emilía Ósk Bjarnadóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Andrea Arna Gylfadóttir skoðar skartið.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Hringar úr versluninni.Harpa Hrund Bjarnadóttir
Bryndís Malmo Bjarnadóttir.Harpa Hrund Bjarnadóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×