Lífið

Egill og Íris Freyja nefna dótturina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Egill og Íris Freyja opinberuðu samband sitt í apríl í fyrra.
Egill og Íris Freyja opinberuðu samband sitt í apríl í fyrra. Kristín Thelma

Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, opinberuðu nafn dóttur þeirra í færslu á Instagram í gær. Stúlkan fékk nafnið Maya sól. 

Parið greindi frá gleðifréttunum í færslu á Instagram. Stúlkan er þeirra fyrsta barn og kom hún í heiminn 26. júní síðastliðinn.

„Fallega litla sólin okkar. Maya Sól Salguero Egilsdóttir,“ skrifuðu þau við færsl­una

Parið byrjaði saman í byrjun ársins 2023.

Egill Fannar er annar eigandi Gorilla vöruhúss og fyrirtækisins Wake Up Reykjavík. 

Fyrirsætan Íris Freyja keppti í Miss Universe Iceland árið 2021. Hún lenti í 2. sæti og var valin Miss Supranational Iceland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.