Lífið

Í­búð við Lauga­veg sem áður var bíósalur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Íbúðin býr yfir miklum sjarma og karakter þar sem vandað efnisval og litrík listaverk eru í aðalhlutverki.
Íbúðin býr yfir miklum sjarma og karakter þar sem vandað efnisval og litrík listaverk eru í aðalhlutverki.

Við Laugaveg 96 í Reykjavík er að finna sjarmerandi íbúð í sögufrægu húsi sem var byggt árið 1967. Stjörnubíó var áður til húsa í eigninni en síðustu kvimyndasýningarnar fóru fram þann 28. febrúar 2002. Ásett verð er 119,9 milljónir.

Eftir að starfsemi Nýjabíós lauk var húsinu breytt í íbúðarhúsnæði en umrædd íbúð var hluti af bíósal b.

Í lýsingu eignarinnar á fasteignavef Vísis kemur fram að íbúðin skiptist í forstofu, tvö baðherbergi, tvö svefnherbergi, og bjart alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu. Útgengt er úr stofu á skjólsælar suðursvalir.

Á gólfum neðri hæðar, stiga, palli og gluggakistum er marmari og íslenskt blágrýti.

Heimilið býr yfir miklum karakter þar sem litrík listaverk og vandað efnisval einkennir þessa skemmtilegu íbúð sem er staðsett í hjarta miðborgarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×