Notaleg og ljúf stemning
Tónlist: Settu tóninn fyrir kvöldið og vertu búinn að setja notalega tónlist á þegar gestirnir mæta.
Lýsing: Dempaðu ljósin og kveiktu á kertum fyrir mjúka og hlýlega birtu.

Skreyting: Leggðu dúk eða diskamottur á borðið. Gættu að því að hafa dúkinn vel straujaðan. Dragðu fram fína matarstellið og raðaðu diskum, tveimur týpum af glösum ásamt hnífapörum fyrir alla rétti kvöldsins, og servíettu á hvern disk. Til að setja punktinn yfir i-ið er fallegt að skreyta með ferskum blómum.
Vertu tímanlega til að njóta: Undirbúðu allt sem hægt er fyrirfram til að minnka álagið á þér um kvöldið svo að þú njótir þín betur með gestunum.

Matur og drykkir
Ferskt hráefni: Notaðu hágæða hráefni og eldaðu allt frá grunni til að vera viss um að réttirnir bragðist sem best. Ef þú kaupir eitthvað tilbúið gættu þá að því að bera matinn fram á fallegum disk.
Drykkir: Vertu tilbúinn með fordrykk þegar gestirnir mæta..
Hafðu svo fjölbreytt úrval ad drykkjum á boðstólum um kvöldið, þar á meðal vín, kokteila og áfengislausa drykki. Hafðu í huga að drykkirnir þurfa passa við réttina sem er boðið upp á.

Þriggja rétta veisla fyrir braðlaukana
Rísotto með sveppum og truffluolíu
Uppskriftin er fyrir fjóra fullorðna, hægt er að helminga hana og bera fram sem forrétt.

Hráefni:
300 g arborio hrísgrjón
1 l kjúklinga- eða grænmetissoð
300 g sveppir (t.d. portobello eða villisveppir)
2 msk ólífuolía
1 laukur, fínt saxaður
2 hvítlauksgeirar, fínt saxaðir
100 ml hvítvín
50 g smjör
50 g parmesanostur, rifinn
Truffluolía eftir smekk
Salt og pipar
Aðferð:
Hitið ólífuolíu á pönnu, bætið við söxuðum lauk og hvítlauk og steikið þar til mjúkt.
Bætið sveppunum út á og steikið þar til þeir eru orðnir brúnir.
Hrærið arborio hrísgrjónunum út í og steikið í 2 mínútur.
Bætið hvítvíninu við og látið sjóða þar til það er að mestu gufað upp.
Hellið soðinu í skömmtum yfir hrísgrjónin og hrærið stöðugt þar til hrísgrjónin eru orðin mjúk, það tekur um 18-20 mínútur.
Blandið smjöri og parmesanosti saman við þegar rísottóið er tilbúið.
Smakkið til með salti, pipar og truffluolíu.
Berið fram með ferskum kryddjurtum og smá truffluolíu.
Beikonvafin nautalund

Hráefni:
4 stk nautalund (um 200 g hver)
8 sneiðar beikon
2 msk olía
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
50 g smjör
Salt og pipar
1 msk fersk steinselja, saxað
Kartöflumús til að bera fram með
Aðferð:
Vefjið nautalundarbitunum inn í tvær sneiðar af beikoni og festið með tannstönglum.
Hitið olíu á pönnu á háum hita og steikið nautalundina í 2-3 mínútur á hvorri hlið til að loka kjötinu.
Bætið smjöri, hvítlauk og steinselju á pönnuna og hellið yfir kjötið á meðan það steikist.
Setjið bitana inn í 180°C heitan ofn og bakið í 8-10 mínútur, eða þar til kjötið er miðlungssteikt.
Látið hvíla í fimm mínútur áður en það er borið fram.
Sjóðið kartölfur, flysjið og stappið saman með smjöri og salti.
Piparostasósa með sveppum
Hráefni:
5 stk sveppir sneiddir niður
smjör
pipar
75 g kryddostur með pipar
2,5 dl rjómi
1 grænmetisteningur
Aðferð:
Bræðið smjör í potti við meðalháan hita. Steikið sveppina þar til þeir eru orðnir brúnir.
Kryddið með pipar og bætið rjómaum út í.
Bætið grænmetisteningi og kryddosti við og látið malla í smá stund.
Framsetning: Raðið fallega á hvern disk áður en rétturinn er borinn fram. Setjið tvær matskeiðar af kartölfumús á miðjan diskinn og steikina ofan á. Skreytið með einni rósmarín-grein. Setjið sósuna í litla skál til hliðar eða á diskinn.
Súkkulaðifondant með vanilluís og ferskum berjum

Hráefni:
200 g dökkt súkkulaði (70% kakó)
100 g smjör
3 egg
100 g sykur
50 g hveiti
Vanilluís til að bera fram með
Fersk ber til skrauts
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C og smyrjið muffinsform vel.
Bræðið súkkulaði og smjör saman yfir vatnsbaði.
Í annarri skál, þeytið egg og sykur saman þar til blandan er ljós og létt.
Hrærið bræddu súkkulaðinu varlega saman við.
Sigtið hveiti út í og hrærið varlega saman þar til blandan er silkimjúk.
Hellið blöndunni í muffinsformin og bakið í 8-10 mínútur, þar til kökurnar eru stífar að utan en enn mjúkar að innan.
Berið strax fram með vanilluís og ferskum berjum.