Handbolti

Haukur gekk frá læri­sveinum Guð­mundar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðmundur ræðir við leikmann sinn fyrir leik. Hann hefur eflaust haft meira að segja eftir leik.
Guðmundur ræðir við leikmann sinn fyrir leik. Hann hefur eflaust haft meira að segja eftir leik. @ehfcl

Haukur Þrastarson var allt í öllu þegar Dinamo Búkarest pakkaði Fredericia saman í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Þá hafði Janus Daði Smárason betur gegn Ómari Inga Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.

Leikið var í Rúmeníu og unnu heimamenn sannfærandi níu marka sigur, lokatölur 37-28. Haukur var markahæstur í sigurliðinu með skoraði sex mörk ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar. Enginn samherja hans kom að jafn mörgum mörkum.

Guðmundur Þ. Guðmundsson er þjálfari Fredericia og þá skoraði Einar Þorsteinn Ólafsson eitt mark en Arnór Viðarsson komst ekki á blað.

Í Ungverjalandi hafði Janus Daði Smárason betur gegn sínu gamla félagi þegar Pick Szeged vann tveggja marka sigur á Magdeburg, lokatölur 31-29. Janus Daði skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum.

Ómar Ingi skoraði fimm mörk og gaf eina stoðsendingu á meðan Gísli Þorgeir skoraði tvö mörk og gaf jafn margar stoðsendingar.

Þetta var fyrsti leikur liðanna fjögurra í Meistaradeildinni á leiktíðinni.

Í Þýskalandi vann Íslendingalið Melsungen öruggan átta marka sigur á Potsdam, lokatölur 31-23. Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Melsungen.

Með sigrinum sitjast Arnar Freyr og Elvar Örn tímabundið á topp deildarinnar þar sem Melsungen hefur leikið leik meira en flest önnur lið deildairnnar.

Þá skoraði Ýmir Örn Gíslason tvö mörk þegar Göppingen tapaði fyrir Kiel með níu mörkum, lokatölur 33-24 Kiel í vil. Ýmir Örn og félagar eru með eitt stig eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×