Forest kom flestum á ó­vart og stoppaði sigur­göngu Liverpool

Andy Robertson hjá Liverpool sést hér niðurlútur eftir að Callum Hudson-Odoi kom Nottingham Forest yfir.
Andy Robertson hjá Liverpool sést hér niðurlútur eftir að Callum Hudson-Odoi kom Nottingham Forest yfir. Getty/Carl Recine

Nottingham Forest varð í dag fyrsta liðið til að bæði skora hjá og vinna Liverpool þegar liðið sótti þrjú stig á Anfield í ensku úrvalsdeildinni.

Forest vann leikinn 1-0 og það var varamaðurinn Callum James Hudson-Odoi sem skoraði sigurmarkið á 72. mínútu eftir stoðsendingu frá öðrum varamanni, Anthony Elanga.

Mark Hudson-Odoi var mjög laglegt eftir hraða sókn. Hann fékk boltann fyrir utan teginn og afgreiddi hann frábærlega í markið.

Liverpool vann fyrstu þrjá leiki sína undir stjórn Arne Slot og allt leit frábærlega út. Hlutirnir gengu ekki upp í dag og niðurstaðan gríðarlega örugglega vonbrigði.

Þetta er fyrsti sigur Forest á Anfield síðan 1969 eða í 55 ár.

Margir leikmenn Liverpool voru að spila mikið í landsleikjahléinu og liðið virkaði dauft og þreytulegt í þessum leik. Boltinn gekk hægt og það hentaði baráttuglöðum gestum vel.

Luis Diaz átti stangarskot í fyrri hálfleiknum en annars gekk Liverpool ekki vel að skapa sér færi í þessum leik enda sést það á því að xG, áætluð mörk, voru undir einum (0,87).

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira