Innherji

Krafa ríkis­skulda­bréfa hækkar vegna ó­vissu um stjórnar­sam­starfið

Hörður Ægisson skrifar
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra sagðist í gærkvöldi ekki treysta sér til að segja til um hvort ríkisstjórnin hefði lifað það af, hefði Yazan verið fluttur af landi brott – en vonaðist til þess að sú ákvörðun væri núna út af borðinu.
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra sagðist í gærkvöldi ekki treysta sér til að segja til um hvort ríkisstjórnin hefði lifað það af, hefði Yazan verið fluttur af landi brott – en vonaðist til þess að sú ákvörðun væri núna út af borðinu. Vísir/vilhelm

Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisskuldabréfa hækkaði nokkuð á markaði í morgun sem má einkum rekja til pólitískrar óvissu, að sögn skuldabréfasérfræðings, og vísar þar til þess hvort ríkisstjórnarsamstarfið muni halda vegna ágreinings stjórnarflokkanna um brottvísun Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvarýrnunarsjúkdóm. Hækkunin á markaðsvöxtum núna kemur í kjölfar töluverðra kröfulækkana að undanförnu og væntingar voru um að sú þróun héldi áfram samtímis vaxtalækkunum erlendis.


Tengdar fréttir

Vænta þess að verð­bólgan verði orðin ná­lægt fimm prósentum í árs­lok

Útlit er fyrir að árstaktur verðbólgunnar muni lækka nokkuð í septembermánuði, ef marka má meðalspá banka og greinenda, og hún verði komin nálægt fimm prósentum í árslok og hafi þá ekki verið lægri í þrjú ár. Þrátt fyrir að verðbólgan sé að hjaðna er talið afar ósennilegt að peningastefnunefnd Seðlabankans hefji vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman eftir um tvær vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×