Auð­velt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
United-menn fagna einu af mörgum mörkum sínum. 
United-menn fagna einu af mörgum mörkum sínum.  Stu Forster/Getty Images

Manchester United fór létt með C-deildarliðið Barnsley og vann 7-0 á Old Trafford í þriðju umferð enska deildarbikarsins.

Sigurinn var aldrei í hættu fyrir heimamenn og gestirnir áttu ekki skot á mark.

Marcus Rashford skoraði opnunarmarkið, Antony bætti svo við af vítapunktinum og Alejandro Garnacho kom þeim í 3-0 rétt fyrir hálfleik.

Einstaklega erfiður dagur á skrifstofunni hjá Altay Bayandir.Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Snemma í seinni hálfleik setti Garnacho annað mark og lagði síðan það fimmta upp á Marcus Rashford.

Sjötta markið kom seint, á 80. mínútu, og var smíði Bruno Fernandes en Christian Eriksen rak smiðshöggið. Eriksen fylgdi því svo eftir og skoraði sjöunda markið skömmu síðar.

United-menn létu þar við sitja, sáttir með 7-0 sigur og halda áfram í fjórðu umferð enska deildarbikarsins.

Kátt á hjalla hjá miðjumönnum United.Stu Forster/Getty Images

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira