Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. september 2024 15:02 John Stones bjargaði stigi fyrir City í dag. Carl Recine/Getty Images Arsenal og Manchester City, liðin sem höfnuðu í efstu tveimur sætum ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, gerðu dramatískt 2-2 jafntefli er liðin mættust í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal veitti City harða baráttu um Englandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili, en liðið þurfti að lokum að sætta sig við annað sætið og horfa á eftir titlinum til Manchester-borgar. Heimamenn í City voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og áttu meðal annars skot í stöng á upphafsmínútunum. Liðinu tókst svo að skora þegar norska markamaskínan Erling Haaland kom boltanum í netið á níundu mínútu, hans hundraðasta mark í 105 leikjum í öllum keppnum fyrir félagið. 1️⃣0️⃣0️⃣ City goals ✨1️⃣0️⃣5️⃣ appearances 🤯#ManCity pic.twitter.com/JpbkzX39fn— Manchester City (@ManCity) September 22, 2024 Eftir um 20 mínútna leik snérist dæmið þó við og gestirnir í Arsenal náðu betri tökum á leiknum. Á 22. mínútu jafnaði liðið svo metin þegar hnitmiðað skot ítalska varnarmannsins Riccardo Calafiori söng í netinu og á fyrstu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks komust gestirnir í forystu þegar miðvörðurinn Gabriel stangaði hornspyrnu Bukayo Saka í netið. Fyrri hálfleik var þó ekki enn lokið. Á áttundu mínútu uppbótartíma braut Leandro Trossard af sér og sparkaði boltanum í burtu eftir að búið var að dæma aukaspyrnu. Þetta var í annað skipti í leiknum sem hann sparkaði boltanum í burtu eftir að búið var að flauta og hann nældi sér þar með í sitt annað gula spjald og var sendur í snemmbúna sturtu. 9’—Haaland’s 100th City goal21’—Rodri off injured22’—Calafiori’s first Arsenal goal 45+1’—Gabriel goal off the set piece45+8’—Trossard sent off after second yellowWhat a first half 🤯 pic.twitter.com/JXrocrBpXP— B/R Football (@brfootball) September 22, 2024 Síðari hálfleikur var svo algjör eign heimamanna í City. Englandsmeistararnir voru nánast allan tímann með boltann og sóttu stíft að marki gestanna. Þrátt fyrir það virtist ekkert ætla að ganga í þeim efnum að jafna metin, þrátt fyrir að vera manni fleiri. Þéttur varnarmúr Arsenal stóð vel og David Raya greip vel inn í í marki Arsenal þegar liðið þurfti á honum að halda. Það var ekki fyrr en að komið var rúmar sex mínútur fram yfir venjulegan leiktíma að stíflan loksins brast. Jack Grealish kom boltanum þá inn á teig þar sem Mateo Kovacic skaut að marki. Skot Króatans fór í varnarmann, en boltinn datt svo fyrir varamanninn John Stones sem mokaði honum í netið úr vítateignum og bjargaði stigi fyrir Englandsmeistarana. 90+8. JOHN STONES LEVELS IT LATE ON!!!🩵 2-2 🔴 #ManCity https://t.co/DLA4TJdBkp— Manchester City (@ManCity) September 22, 2024 Manchester City er nú með 13 stig eftir fimm leiki á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, en Arsenal situr í fjórða sæti með 11 stig. Bæði lið eiga enn eftir að tapa leik á tímabilinu. Enski boltinn