Arkitekta- og verkfræðistofur merkja mikinn samdrátt í verkefnum
![Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, sagði á fundi samtakanna og HMS fyrr í dag að lóðaskortur hefði heft íbúðauppbyggingu og að vaxtamörk svæðisskipulags höfuðborgarsvæðsins taki ekki mið af fjölgun landsmanna.](https://www.visir.is/i/A3BACE7620D820C301BBC44A357370423762F1CC05F6081D445415733EB7A765_713x0.jpg)
Allt útlit er fyrir minna framboð íbúðarhúsnæðis á næstu árum sem birtist meðal annars í því að meira en sextíu prósent arkitekta- og verkfræðistofa segja að verkefnum hjá sér hafi fækkað, samkvæmt nýrri könnun sem Samtak iðnaðarins hafa gert. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að áherslur stjórnvalda í húsnæðisstuðningi, sem beinast núna í meira mæli til leigjenda, séu til þess fallin að magna vandann enn frekar í stað þess að auka hvata til íbúðaruppbyggingar.