Rafíþróttir

TDE hirtu Leifarnar og tvö stig í leiðinni

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Leifarnar máttu lúta í lægra haldi fyrir TDE í 4. umferð Litlu Kraftvéladeildarinnar en leikirnir tveir benda til þess að síðarnefnda liðið gæti mögulega verið að hrökkva í gír.
Leifarnar máttu lúta í lægra haldi fyrir TDE í 4. umferð Litlu Kraftvéladeildarinnar en leikirnir tveir benda til þess að síðarnefnda liðið gæti mögulega verið að hrökkva í gír.

Viður­eign liðanna TDE jr og Leifarnar í 4. um­ferð Litlu Kraft­véla­deildarinnar í Dota 2 lauk með kær­komnum og góðum 2-0 sigri sem skilaði TDE sínum fyrstu tveimur stigum.

TDE og Leifarnar áttust við í 1. riðli deildarinnar á sunnudaginn. Þorlákur Björnsson og Brynjólfur Sigurðsson lýstu keppninni í beinni útsendingu og sögðust fyrir leik hafa skynjað mikla spennu í báðum liðum. Eðlilega kannski þar sem bæði komu þau í 4. umferð með tap á bakinu.

Lýsendurnir töldu þó úrslitin og frammistöðu sigurvegaranna benda til þess að liðsmenn TDE væru byrjaðir að „finna sig“ eftir að slakt gengi í upphafi móts.

Liðin keppa í riðli 1 en eftir leik gærkvöldsins er Kuti þar efstur með 5 stig en á botninum sitja Coup de Brains og Leifarnar með 0 stig. Í riðli 2 er TSR Akademían efst með 5 stig en á botninum hvíla Skill Issue og Axel Avengers stiglaus.

Riðill 1

1. Kuti 5

2. Lína & Durtarnir 3

3. Snorri & Dvergarnir 2

4. TDE jr 2

5. Verktakaþjónusta Bigga frænda 2

6. Coup de Brains 0

7. Leifarnar 0

Riðill 2

1. TSR Akademían 5

2. Alltof Heimskir 3

3. Hendakallarnir 3

4. Kiddi Karrí 2

5. Mímklúbburinn Breiðnefur 1

6. Skill Issue 0

7. Axel Avengers 0


Tengdar fréttir

Bestu hakkavélarnar byrja mótið sem þjálfarar

Litla-Kraftvéladeildin hófst á ný með liðakeppni í Dota2 sunnudaginn 8. september og rétt eins og í öðrum deildum Rafíþróttasambandsins er hugur í mannskapnum við upphaf keppnistímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×