Sport

Margbrotnaði á and­liti, gæti verið dofinn fyrir lífs­tíð en ætlar að spila á­fram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eins og sjá má var andlit Stefans Ratchford býsna illa farið.
Eins og sjá má var andlit Stefans Ratchford býsna illa farið. vísir/getty

Ekki verður annað sagt en að Stefan Ratchford, leikmaður rugby-liðsins Warrington Wolves, sé alvöru nagli. Hann margbrotnaði á andliti, gat ekki borðað fasta fæðu í fjórar vikur, gæti verið dofin í andlitinu það sem eftir er en ætlar samt að halda áfram að spila.

Ratchford meiddist illa þegar hann fékk olnbogaskot í leik gegn St. Helens Saints í leik í bresku rugby-deildinni í júlí. Hann brotnaði á ellefu stöðum í andlitinu og hlaut taugaskaða.

„Kannski verð ég dofinn í andlitinu það sem eftir er ævinnar. Þetta voru ellefu brot. Við héldum að þau væru tíu en þegar ég fór í aðgerð fannst sú ellefta,“ sagði Ratchford sem var á fljótandi fæði í rúmar fjórar vikur eftir slysið.

Þrátt fyrir allt er Ratchford byrjaður að æfa á ný og stefnir á að spila með Warrington Wolves á föstudaginn.

Ratchford segist enn vera að safna kröftum enda hafi hann misst rúmlega sex kíló meðan hann var á fljótandi fæðinu. Kílóin eru þó að koma aftur á hann og hann hlakkar til að komast aftur út á völlinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×