Lífið

Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og á­minning um ó­öryggi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnurnar eru ekki bara fallegar heldur hoknar af reynslu þegar það kemur að andlegri heilsu.
Stjörnurnar eru ekki bara fallegar heldur hoknar af reynslu þegar það kemur að andlegri heilsu.

Afmælisfögnuður, barnalán og sólríkir haustdagar einkenndu liðna viku hjá stjörnum landsins. Gummi kíró minnir fólk til dæmis á að við erum öll einstök eins og við erum, sama hvernig við lítum út.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Sumarið hjá Acox

Kristófer Acox leikmaður Vals í körfubolta birti skemmtilegar myndir frá sumrinu.

Sjálfstraustið kom ekki að sjálfu sér

Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, segir óröyggi geta haft mikil áhrif á lífsgæði fólks. „Mikilvægt að minna sig á hvað við erum öll einstök og falleg, sama hvernig við lítum út,“ skrifar Gummi.

Njóta í sólinni

Linda Benediktsdóttir matarbloggari naut lífsins í fríi í sólinni á Spáni með fjölskyldunni. Sannkallaðir skvísustælar við sundlaugarbakkann.

Afmælis-hvutti

Helgi Ómarsson ljómyndari fagnaði sex ára afmæli ferfætlingsins Nóels í vikunni. Hundurinn fékk alvöru afmælisveislu með köku og blöðrum.

Lag tileinkað dótturinni

Listamaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson gefur út lagið Fræ 9. október næstkomandi, tileinkað dóttur sinni Kolfinnu Önnu.

Gufa og glens í Helinski

Fjölmiðlamaðurinn Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunna, fór í helgarferð til Helsinki í Finnlandi, með kærasta sínum, Sigmari Inga Sigurgeirssyni.

>

Töff með mottu

Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel birti mynd af sér frá helginni, mjög töff í jakkafötum með mottu.

Bumba og sokkabuxur

Sandra Björg Helgadóttir þjálfari og áhrifravaldur birti flottar myndir af sér sokkabuxum með bumbuna, nokkrum dögum áður en litli maðurinn mætti á svæðið.

Settur dagur

Dansarinn og söngkonan Aníta Rós Þorsteinsdóttir er gengin fulla meðgöngu og birti í tilefni þess flotta bumbumynd af sér í netasokkabuxum. 

Dress af mömmu

Skemmtikrafturinn Eva Ruza Miljevic var smart í 45 ára dressi af mömmu sinni. Góð nýting og afar glæsileg!

Tískuvikan í París

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir naut lífins með systur sinni Júníu Lín í París í tilefni tískuvikunnar.

Sólríkt útiafmæli

Elísabet Gunnarsdóttir hélt upp á tveggja ára afmæli dóttur sinnar Önnu Magdalenu um helgina. Veislan var haldin úti í blíðviðrinu.

Bestu vinkonur

Leikkonan Unnur Eggertsdóttir birti hjartnæma færslu um móðurhlutverkið þar sem hún lýsir því dóttir hennar Emma gerir hversdaginn dásamlegan.

Notalegt helgarfrí

Ása Steinars naut helgarinnar á hótelinu við Lökulsárlón.

Ostapasta

Sunneva Einars fékk sér ostapasta í London.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×