Rafíþróttir

Tæknin varð Breið­nefjum fjötur um fót í Dota2

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Kiddi Karrí og Mímklúbburinn Breiðnefur skildu jöfn í viðureign sinni í Dota2 á sunnudag en tækniklúður varð til þess að Breiðnefjar töpuðu fyrri leiknum sjálfkrafa.
Kiddi Karrí og Mímklúbburinn Breiðnefur skildu jöfn í viðureign sinni í Dota2 á sunnudag en tækniklúður varð til þess að Breiðnefjar töpuðu fyrri leiknum sjálfkrafa.

Lið Kidda Karrí og Mím­klúbbsins Breið­nefs skildu jöfn, 1-1, í viður­eign sinni í 2. riðli fimmtu um­ferðar Litlu Kraft­­véla­­deildarinnar í Dota 2 á sunnu­daginn.

Mímklúbburinn Breiðnefur og Kiddi Karrí skildu jöfn þegar þau mættust í fimmtu viku Litlu-Kraftvéladeildarinnar á sunnudaginn. Tækniklúður kostaði Mímklúbbinn fyrri leikinn án raunverulegrar baráttu en liðið þurfti að gefa leikinn eftir að Jölull fyrirliði aftengdist honum fyrir slysni.

Breiðnefjar voru þó ekki af baki dottnir í seinni leiknum, sem var bæði spennandi og jafn, og sítengdir höfðu þeir sigur þannig að þegar upp var staðið gengu bæði lið af velli með einn sigur og eitt tap.

Eftir gærkvöldið er Kuti efstur í 1. riðli með 5 stig og TSR Akademían og Hendakallarnir eru á toppi 2 riðils, einnig með 5 stig.

Staða liða í Litlu Kraftvéladeildinni í Dota2 eftir leik sunnudagskvöldsins.

Tengdar fréttir

TDE hirtu Leifarnar og tvö stig í leiðinni

Viður­eign liðanna TDE jr og Leifarnar í 4. um­ferð Litlu Kraft­véla­deildarinnar í Dota 2 lauk með kær­komnum og góðum 2-0 sigri sem skilaði TDE sínum fyrstu tveimur stigum.






×