Lífið

Sturlað augna­blik þegar af­mælis­barnið endaði uppi á borði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Það var ansi mikið stuð hjá Jóni Gunnari Geirdal um helgina.
Það var ansi mikið stuð hjá Jóni Gunnari Geirdal um helgina.

„Þessi dagur var í alla staði fullkominn. Gullfallegt veðrið gaf tóninn fyrir því sem varð að frábærri afmælisveislu,“ segir þúsundþjalasmiðurinn, handritshöfundurinn, hugmyndasmiðurinn og fyrrverandi útvarpsmaðurinn Jón Gunnar Geirdal sem fagnaði um helgina stórafmæli sínu þegar hann varð fimmtíu ára.

Veislan hófst með fordrykk á Gilligogg og Benna B Ruff á græjunum. Hún hélt svo áfram á Vinnustofu Kjarval þar sem boðið var upp á geggjaðan mat. Jón Gunnar segist í samtali við Vísi fyrst og fremst þakklátur fyrir sína viðburðarhirð eins og hann nefnir hana. 

„Ég hefði ekki getað þetta án Skreytingarþjónustunnar, Balún, Rent a Party og Kokkaþjónustunnar, það er þvílíkur munur að vinna með þeim Láru, Þórdísi og Matta, þetta er alvöru fagfólk,“ segir Jón Gunnar hlæjandi.

„Talandi um mína viðburða-hirð þá hefur DJ Margeir verið minn „go2“ plötusnúður enda enginn betri í að skapa réttu stemninguna og hann fékk Steingrím Teague úr Moses Hightower með sér í lið og tók það andrúmsloft á móti gestum. Stemningin óx svo eftir því sem á leið og náði hámarki þegar söngkonan Matthildur og Daníel Ágúst mættu á sviðið - það var gjörsamlega sturlað augnablik og ætlaði allt um koll að keyra þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði dansandi með Daníeli í brjáluðum GusGus gír!“

Stemningin var ansi góð á Vinnustofu Kjarval. 

Jón Gunnar með þeim Doctori Viktor og Hálfdáni Steinþórs. 

Kristmundur Axel og afmælisbarnið. 

Systurnar Freyja og Sigurborg Geirdal létu sig ekki vanta.

Doctor Victor, Rúrik Gísla og Ásgeir. 

Rúnar Gíslason eigandi Kokkarnir.is og Spírunnar í stuði í fordrykk í sól á Austurvelli. 

JGG með móður sinni, Lilju S. Jónsdóttur. 

JGG og Fjóla Katrín Steinsdóttir.

Afmælisbarnið og Daníel Ágúst eftir borðadans.

Sir Arnar Gauti lét sig ekki vanta. 

JGG og Hálfdán Steinþórsson á dansgólfinu. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×