Innherji

Grein­endur stóru bankanna með ó­líka sýn á gengis­þróun krónunnar

Hörður Ægisson skrifar
Hagfræðingar bankanna eru allir á einu máli um að hækkandi raungengi sé farið að bíta sem aftur muni draga úr krafti krónunnar.
Hagfræðingar bankanna eru allir á einu máli um að hækkandi raungengi sé farið að bíta sem aftur muni draga úr krafti krónunnar. Vísir

Skiptar skoðanir birtast í nýlegum hagspám viðskiptabankanna um horfurnar í gengisþróun krónunnar en á meðan hagfræðingar Landsbankans og Íslandsbanka telja útlit fyrir lítilsháttar styrkingu á allra næstu árum eru greinendur Arion heldur svartsýnni, sé litið til mats þeirra á undirliggjandi efnahagsþáttum og utanríkisverslun, og vænta þess að hún eigi eftir að veikjast. Gengið hefur styrkst nokkuð síðustu vikur, einkum með auknu innflæði vegna kaupa á ríkisbréfum, en heilt hefur krónan haldist afar stöðug á árinu.


Tengdar fréttir

Krónan styrkist þegar ríkis­bréfin komust á radarinn hjá er­lendum sjóðum

Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×