Viðskipti innlent

Sölunni slegið á frest

Árni Sæberg skrifar
Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Kópavogi.
Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Kópavogi. Vísir/Vilhelm

Ákveðið hefur verið að fresta sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka vegna markaðsaðstæðna og þess að skammt er til alþingiskosninga. 42,5 prósenta hlutur ríkisins er um 92 milljarða virði.

Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að einhugur hafi verið um að fresta sölunni innan ráðherranefndar um ríkisfjármál, þar sem forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra sitji, að fenginni ráðgjöf frá umsjónaraðilum útboðsins.

Félags- og vinnumarkaðsráðherra er alla jafna þriðji maður ráðherranefndar en slíkum er ekki lengur til að dreifa, eftir að Guðmundur Ingi Guðbrandsson hætti í starfstjórn sem nú situr.

Undirbúningur kominn langt á veg

Í tilkynningunni segir að við ákvörðunartökuna hafi verið horft til markaðsaðstæðna og þess að skammt er til alþingiskosninga. Mikilvægt sé að hámarka líkur á að útboðið heppnist vel og að næg þátttaka fáist, meðal annars frá almenningi.

Undirbúningur sölunnar hafi gengið vel og sé kominn langt á veg í samstarfi við ráðgjafa ríkisins, Kviku, Barclays og Citi, fjármálaráðgjafann Landsbankann, auk lögfræðiráðgjafa. Muni sú vinna nýtast þegar sölunni verður fram haldið, jafnvel þó það verði ekki fyrr en á nýju ári.

Til stóð að selja helming á þessu ári og restina á því næsta

Í tilkynningunni segir að samkvæmt lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. hafi fjármálaráðherra heimild til að ráðstafa eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka að fenginni heimild Alþingis í fjárlögum. 

Í lögunum sé gert ráð fyrir einu eða fleiri útboðum. Ríkissjóður hafi fengið 108 milljarða króna í sinn hlut í fyrri útboðum Íslandsbanka og eigi enn 42,5 prósenta hlut í bankanum. 

Samkvæmt dagslokagengi í dag er sá hlutur um 92 milljarða króna virði.

Horft hefði verið til þess að um það bil helmingurinn af þessum hlut yrði seldur á þessu ári og eftirstandandi hlutur á næsta ári, eftir því sem markaðsaðstæður leyfðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×