Íslenski boltinn

Blikarnir draga úr hópi þeirra sem óska eftir miðum á úr­slita­leikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það komast miklu færri að en vilja á úrslitaleik Víkings og Breiðabliks á sunnudaginn.
Það komast miklu færri að en vilja á úrslitaleik Víkings og Breiðabliks á sunnudaginn. Vísir/Hulda Margrét

Breiðablik hefur sent frá sér yfirlýsingu um hvað varð um þá 250 miða sem Blikar fengu í Víkina á sunnudaginn þegar félagið mætir Víkingum í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild karla í fótbolta.

Í tilkynningunni kemur fram að búið er að ráðstafa öllum 250 miðum Breiðabliks fyrir stórleik Víkings og Breiðabliks næsta sunnudag.

Miðarnir fóru til nánustu aðstandenda leikmanna og þjálfara, launaðs og ólaunaðs starfsfólks félagsins og stuðningsmannasveitar.

Blikaklúbbsmeðlimir, Afreks Blikar og árskortahafar fá upplýsingar í tölvupósti um hvernig þau geta óskað eftir miðum á leikinn. Dregið verður úr þeim aðilum sem óska eftir miðum og er einn miði á mann. Þessir aðilar fá staðfest á morgun, fimmtudag hvort þau fái miða.

Ljóst er að margfalt færri komast að en vilja en Breiðablik segir frá því í frétt sinni að félagið verður með áhorfs partý á leikdegi. Nánari upplýsingar og útfærslu á því koma síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×