Sport

Sex hundruð milljónir fyrir að grípa bolta í stúkunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Shohei Ohtani átta magnað tímabil með Los Angeles Dodgers.
Shohei Ohtani átta magnað tímabil með Los Angeles Dodgers. Getty/Sean M. Haffey

Japanski hafnaboltamaðurinn Shohei Ohtani hjá Los Angeles Dodgers átti sögulegt tímabil í bandaríska hafnaboltanum og einn boltanna sem hann sló upp í stúku í ár var seldur á metfé í gær.

Ohtani varð sá fyrsti í sögu MLB deildarinnar til að ná því á einu og sama tímabilinu, að slá bæði boltann fimmtíu sinnum upp í stúku [home run] sem og að ná því að stela fimmtíu höfnum.

Ohtani innsiglaði þetta afrek þegar hann sló boltann upp í stúku og komst í heimahöfn í fimmtugasta sinn í leik á móti Marlins í september.

Boltanum var síðan komið í sölu með hjálp uppboðshaldarans Goldin Auctions.

Boltinn seldist síðan á uppboði í gær á metfé eða fyrir 4,39 milljónir Bandaríkjadala. Það gera 607 milljónir íslenskra króna. Það kom ekki fram hver hefði keypt boltann.

Gamla metið var frá 1999 þegar hafnabolti seldist fyrir þrjár milljónir dollara. Þann bolta sló Mark McGwire upp í stúku en hann setti þá met með því að ná heimahafnarhlaupi í sjötugasta sinn á 1998 tímabilinu.

Það er reyndar ekki búið að skera út um það fyrir dómstólum hver sé réttur eigandi boltans. Það gekk nefnilega mikið á í stúkunni í kapphlaupi við að ná þessum dýrmæta bolta.

Þeir sem gera tilkall til hans voru þó tilbúnir að selja hann á uppboðinu. Dómsmálið mun síðan ákveða hver þeirra fær peninginn.

Það er ekki slæmt að fá yfir sex hundruð milljónir fyrir að grípa bolta í stúkunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×