Lífið

Ragga Holm og Elma eignuðust dreng

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ragga Holm og Elma Valgerður eru orðnar foreldrar.
Ragga Holm og Elma Valgerður eru orðnar foreldrar. Ragga Holm

Reykjavíkurdóttirin Ragga Holm og kærastan hennar Elma Valgerður eignuðust frumburð sinn þann 22. október síðastliðinn. Öllum heilsast vel og segist Ragga ekki geta sett það í orð hve stolt hún er af konunni sinni.

Parið birti sameiginlega færslu á Instagram þar sem þær tilkynna fæðingu sonarins. 

„Þann 22. október kl 07:12 mætti litli strákurinn okkar í heiminn. Ég get ekki sett það í orð hvað ég er stolt af Elmu minni sem stóð sig eins og hetja. 

Ég mun þakka henni á hverjum degi fyrir að hafa búið til gullfallega son okkar. Elmu heilsast vel, honum heilsast vel og mér líður vel,“ skrifar Ragga. 

Ragga og Elma hafa verið par í nokkur ár og í viðtali við Vísi í fyrra segir Ragga að Elma sé sinn besti vinur. 

„Makinn minn er besti vinur minn, A-Team liðsfélagi og pepparinn minn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.