Handbolti

Veszprém og Pick Szeged jöfn að stigum fyrir toppslaginn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk úr hægra horninu fyrir Veszprém. 
Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk úr hægra horninu fyrir Veszprém.  Ayman Aref/NurPhoto via Getty Images

Veszprém og Pick Szeged eru jöfn í efsta sæti ungversku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Bæði lið unnu sína leiki í dag og mætast innbyrðis í næstu umferð. 

Pler – Pick Szeged 27-41

Pick Szeged vann stórsigur á útivelli gegn Pler, liði frá höfuðborginni Búdapest. Sigurinn var aldrei í hættu fyrir efsta lið deildarinnar gegn 9. sætinu. Fjórtán mörkum munaði þegar flautað var af, 27-41.

Janus Daði Smárason eyddi rúmlega 31 mínútu á gólfinu og skoraði 5 mörk úr 6 skotum fyrir Pick Szeged. Hann var þriðji markahæstur á eftir Spánverjanum Imanol Garciandia sem skoraði sjö mörk og Ungverjanum Bánhidi Bence sem skoraði sex.

Veszprém – Gyöngyös 40-25

Ríkjandi meistararnir tóku á móti liðinu sem situr í 11. sæti og unnu öruggan og stóran sigur. 40-25 lokaniðurstaðan í lítið spennandi leik.

Bjarki Már Elísson átti góðan leik í vinstra horni heimaliðsins, spilaði tæpar 35 mínútur og skoraði 5 mörk úr 7 skotum.

Aron Pálmarsson gekk nýlega til liðs við Veszprém en hefur ekki enn spilað leik. Hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Staðan í deildinni

Vesprém er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga, 16 stig eftir 8 leiki. Pick Szeged er í öðru sæti með jafnmörg stig en hefur leikið einum fleiri leik. Tapið kom gegn Csurgó í þarsíðustu umferð.

Toppslagur verður svo leikinn í næstu umferð þegar Pick Szeged tekur á móti Vesprém.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×