Körfubolti

Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stiga­hæstur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bragi Guðmundsson þurfti bara þrjú skot utan af velli til að skora fimmtán stig og verða stigahæsti maðurinn í sínu liði.
Bragi Guðmundsson þurfti bara þrjú skot utan af velli til að skora fimmtán stig og verða stigahæsti maðurinn í sínu liði. Vísir/Hulda Margrét

Grindvíkingurinn Bragi Guðmundsson er á sínu fyrsta tímabili með Campbell skólanum í bandaríska háskólakörfuboltanum og það er óhætt að segja að strákurinn byrji vel.

Bragi og félagar unnu öruggan 96-49 sigur á Pfeiffer skólanum i fyrsta leik tímabilsins. Campbell spilar í fyrstu deild bandaríska háskólakörfuboltans.

Bragi skoraði fimmtán stig á átján mínútum í leiknum en það sem meira er að hann hitti úr öllum skotum sínum. Hann kom mjög sterkur inn af bekknum og gerir tilkall til þess að fá sæti í byrjunarliðinu.

Bragi hitti úr öllum þremur skotum sínum utan af velli og síðan úr öllum átta vítaskotum sínum. Eitt af skotunum var fyrir utan þriggja stiga línuna.

Bragi var langstigahæsti leikmaðurinn í sínu liði, sá næsti skoraði tíu stig, en hann var einnig með sex fráköst, tvo stolna bolta og eina stoðsendingu.

Bragi lék með Penn State í fyrra en færði sig yfir til Campbell í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×