Handbolti

Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzun­gen

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Andrea Jacobsen hleður í skot með íslenska landsliðinu. Hún átti góðan leik í dag.
Andrea Jacobsen hleður í skot með íslenska landsliðinu. Hún átti góðan leik í dag. VÍSIR / DIEGO

Íslendingalið Blomberg-Lippe fór létt með Metzungen, lið Söndru Erlingsdóttur, þegar þau mættust í Evrópudeild kvenna í handbolta.

Lokatölur leiksins 30-21 og sigur heimakvenna aldrei í hættu. Andrea Jacobsen var gríðarlega öflug í liði Blomberg-Lippe, skoraði hún fimm mörk og gaf þrjár stoðsendingar.

Þá skoraði Díana Dögg Magnúsdóttir eitt mark í liði heimakvenna. Sandra skoraði einnig eitt mark í liði gestanna.

Um var að ræða fyrri leik liðanna í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Síðari leikurinn fer fram næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×