Lífið

Stíl­hreinn glæsi­leiki og svartur marmari á Nesinu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Heimilið er stílhreint og fallegt.
Heimilið er stílhreint og fallegt.

Við skerjabraut á Seltjarnarnesi er að finna stílhreina og fallega 137 fermetra íbúð á tveimur hæðum í húsi sem var byggt árið 2015. Ásett verð er 137,9 milljónir.

Eignin skiptist í anddyri, alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Frá efri hæð íbúðarinnar er útgengt á tæplega 35 fermetra verönd sem snýr í suðvestur.

Stofurýmið er opið og bjart með aukinni lofthæð og stórum gluggum. Þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir til austurs. Dökkar viðarþiljar prýða í loftið í eldhúsinu og að hluta til í stofurýminu, gefa eigninni mikinn karakter og hlýlega ásýnd til móts við hvítmálaða veggina.

Í eldhúsinu er stílhrein, hvít innrétting með góðu vinnuplássi. Veglegur svartur marmari er á borðum og á eyju.

Heimilið er innréttað mínímalískan máta þar sem vönduð húsgögn og fagurfræði ræður ríkjum.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×