Lífið

Húðrútína Birtu Abiba

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Birta Abiba er búsett í New York.
Fyrirsætan Birta Abiba er búsett í New York.

Ofurfyrirsætan Birta Abiba segir sólarvörn framar öllu öðru þegar kemur að daglegri húðumhirðu. Hún segir að vegna starfsins sé húðrútínan hennar umfangsmeiri en hjá flestum, en hún hvetur ungmenni til að  nota færri vörur en fleirri.

Birta er búsett í New York þar sem hún starfar sem fyrirsæta. Á ferlinum hefur hún setið fyrir hjá stórfyrirtkjum á borð við hamborgararisann McDonald's, FILA og Champion. 

Árið 2019 sigraði Birta Miss Universe Iceland-keppnina og komst í topp tíu hópinn í stóru Miss Universe keppninni erlendis.

Að sögn Birtu innheldur húðrútínan hennar líklega fleiri vörur en hjá flestum: „Ég vil minna sérstaklega ungt fólk á að það er allt í lagi ef húðrútínan er afar lítil. Ég er í afar óvenjulegri vinnu en er mikilvægast af öllu að nota góða sólarvörn,“ segir Birta.

Hvernig húðtýpu ertu með?

„Þegar ég er í löndum með miklum kulda, þurrka í loftinu eða mengun verður húðin mín þurrari en vanalega. Annars er ég með voða „baseline“ húð og engin ofnæmi fyrir kremum, þannig að næstum allt sem virkar fyrir mig mun auðvitað ekki virka fyrir alla.“

Sólarvörn mikilvæg öllum

Hvernig er húðrútínan  þín ?

Morgunrútínan

„Á hverjum morgni nota ég bæði rakarkrem og sólarvörn. Það eina sem virkar fyrir alla í heiminum, sama hvort þú ert með risa húðrútínu eða bara enga: NOTA SÓLARVÖRN! 

Ekki bara því sólin er ein af aðal hlutunum sem eldir húðina heldur því UV geislarnir hennar auka líkurnar manns á húðkrabbameini sama hvar þú ert í heiminum, jafnvel í löndum þar sem maður fær pínu litla sól líkt og á klakanum,“ segir Birta.

Murad Hydro-Dynamic Ultimate Moisture Cle de Peau Beaute UV Protective Cream SPF 50+Supergoop PLAY SPF 50 EVERYDAY LOTION

Kvöldrútínan

„Á kvöldin nota ég fimm húðvörur sem hreinsa og næra húðina.“

Cle de Peau Soft cleansing foam, Elemis pro collagen rose cleansing balm, REN ATLANTIC KELP AND MICROALGAE ANTI-FATIGUE TONING BODY OIL
Cle de Peau the serum, Murad Hydro-Dynamic Ultimate Moisture

Birta segist nota hreinsimaska tvisvar sinnum í viku. Húðin verður ljómandi fín eftir það.

LE MASQUE /Camellia Exfoliating Mask frá Chanel.Skjáskot/chanel.com

Er eitt­hvað annað sem þú notar sjaldnar til að fríska upp á húðina?

„Ég nota stundum drying lotion sem er fyrir bólur, kælingu undir augun, kælirúllu og kælimaska á andlitið þegar það á við.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.