Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Jakob Bjarnar skrifar 27. nóvember 2024 15:41 Þessi fimm eru tilnefnd í flokki skáldverka: Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Jón Kalman Stefánsson, Gerður Kristný og Arnaldur Indriðason, sem er líklega sá sem selt hefur flestar bækur á Íslandi. Hann er ekki með glæpasögu núna heldur sögulega skáldsögu og það er eins og við manninn mælt. vísir Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar nú rétt í þessu. Arnaldur Indriðason, Jón Kalman Stefánsson, Gerður Kristný, Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Kristín Ómarsdóttir fara fyrir fríðum hópi en þau eru tilnefnd í flokki skáldverka.
Um er að ræða verðlaun íslenskra bókaútgefenda og voru tilnefndir kynntir með pompi og prakt í Eddu. Sjálf verðlaunin verða afhent um mánaðarmótin janúar/febrúar á komandi ári af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Flokkarnir eru fjórir en tilnefnt er til Blóðdropans – íslensku glæpasagnaverðlaunin, barn- og unglingabækur, fræðibækur og svo fagurbókmenntir. Formenn dómnefndanna, þau Björn Teitsson, Kristín Ásta Ólafsdóttir, Unnar Geir Unnarsson og Viðar Eggertsson munu koma saman ásamt forsetaskipuðum formanni, Kristínu Ingu Viðarsdóttur, velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk en það er Félag íslenskra bókaútgefenda kostar. Sögulegur fróðleikur Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er þeim ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er í 36. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna en þau voru stofnuð árið 1992. Matthías Rúnar Sigurðsson hannaði nýjan koparsteyptan verðlaunagrip, hrafninn Blæng, sem veittur var í fyrsta sinn í upphafi þessa árs til verðlaunahafa ársins 2023. Steinunn Sigurðardóttir, Haraldur Sigurðsson, Gunnar Helgason og Rán Flygenryng og Eva Björg Ægisdóttir hlutu verðlaunin fyrir ári. Félag íslenskra bókaútgefenda gerði samkomulag við Íslenska glæpafélagið árið 2022 um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins. Gagnrýni á verðlaunin Undanfarin ár hefur hörð gagnrýni dunið á íslenskum útgefendum vegna fólks sem tekið hefur sæti í dómnefndunum; að þar ráði vanhæfni og menntunarskortur. Útgefendur telja þetta hins vegar ekki eiga við nein rök að styðjast. Stór hópur fólks hefur numið íslensku og bókmenntafræði án þess að stimpla sig inn hjá bókmenntaelítu landsins. Að auki hafa margir einnig numið bókmenntafræði erlendis án þess að hafa um það hátt. „Við teljum okkur hafa verið mjög heppin með nefndarmenn okkar sem auk ágætrar menntunar hafa einnig reynst afburðar lesmálsrýnarar,“ segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Íslenskra útgefenda. Margt hefur verið reynt, í upphafi var dómnefnd skipuð fólki úr atvinnulífinu, einhvern tímann voru einráðar, fólk hefur verið handvalið og nú síðustu ár hefur einfaldlega verið auglýst eftir fólki í þessi ábyrgðastörf. Þannig hafa borist urmull góðra umsókna frá mjög reyndu og menntuðu fólki sem auk þess hefur haft það sér til ágætis að vera eins laust við hagsmunatengsl og hægt er að fara fram á í fámennu landi, að sögn Bryndísar. Tilnefnd eru í flokki skáldverka Arnaldur Indriðason Ferðalok Útgefandi: Vaka Helgafell Einstaklega vel unnin söguleg skáldsaga sem dregur upp nýja og ferska sýn af skáldinu kunna. Saman við ljóð Jónasar og síðustu daga fléttast minningabrot úr fortíð hans í meistaralega vel skrifuðum texta. Léttur og fljótandi stíll málar upp mynd sem lætur engan ósnortinn. Jón Kalman Stefánsson Himintungl yfir heimsins ystu brún Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa Sagt frá magnþrungnum atburðum í sögu þjóðarinnar í upphafi 17. aldar með nýjum hætti og þeir túlkaðir með hliðsjón af hugmyndum vísindamanna þess tíma um heiminn. Lifandi og frumleg persónusköpun byggir á þekktum sögulegum persónum. Leiftrandi frásagnargleði með öguðum en liprum texta og sterkum skírskotunum til samtímans. Gerður Kristný Jarðljós Útgefandi: Mál og menning Áleitin ljóð sem fjalla um mannleg örlög í nútíð og fortíð þar sem grimm alvara og lævís kímni vegast á. Í kaldhömruðum textanum er hljómgaldur og taktur tungunnar nýttur til fulls og meitlað myndmál túlkar heitar tilfinningar. Birgitta Björg Guðmarsdóttir Moldin heit Útgefandi: Drápa Með léttum og hrífandi ritma er lesendum boðið upp í dans. Smám saman brýst út tilfinningaþrungin frásögn í listilega uppbyggðri skáldsögu. Listrænn en jafnframt aðgengilegur texti sem ætti að höfða til allra. Kristín Ómarsdóttir Móðurást: Draumþing Útgefandi: Mál og menning Sögulegur frásagnagaldur sem hverfist um unga stúlku sem verður að konu á sumarsólstöðum. Nýstárlegur og óvenjulegur frásagnarstíll. Hrífandi fíngerður og ljóðrænn glitvefur ofinn af meistara höndum. Dómnefnd skipuðu: Gunnlaugur Ástgeirsson, Kris Gunnars og Viðar Eggertsson sem jafnframt var formaður dómnefndar. Tilnefnd til Blóðdropans Óskar Guðmundsson Brúðumeistarinn Útgefandi: Storytel Vel uppbyggð saga þar sem atburðir úr fortíðinni varpa dökkum skugga á nútímann. Sögufléttan er snjöll og framvindan traust, þar sem hver vendipunktur styrkir heildina. Spennan er óslitin allt til loka, og höfundi tekst listilega að viðhalda leyndardómnum sem heldur lesandanum í heljargreipum. Stefán Máni Dauðinn einn var vitni Útgefandi: Sögur útgáfa Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson stendur frammi fyrir óljósri en ógnandi hótun í hrífandi glæpasögu sem þróast í óvænta spennu með hasar og hraðri framvindu. Frásagnarstíllinn er sjónrænn og áhrifaríkur, með vel útfærðri sögufléttu sem heldur lesandanum föstum í spennu allt til loka. Eva Björg Ægisdóttir Kvöldið sem hún hvarf Útgefandi: Veröld Spennandi bók þar sem lögreglukonan Elma tekst á við flókið og marglaga sakamál. Glæpasagan fangar lesandann með vel útfærðri ráðgátu og djúpri persónusköpun sem dregur fram mannlega þætti í hörðum aðstæðum. Höfundurinn lýsir heimi sem er þrunginn óvissu og spennu, þar sem óvæntir vendipunktar halda lesandanum á tánum frá fyrstu síðu til hinnar síðustu. Ragnheiður Gestsdóttir Týndur Útgefandi: Björt bókaútgáfa Vel heppnuð og spennandi saga um lítinn dreng sem lifir í heimi ofbeldis í Reykjavík. Höfundi tekst vel að lýsa ógnandi umhverfi en þar leynist einnig góðvild og manngæska. Rannsókn lögreglukonunnar Hönnu Maríu er leidd áfram af næmi og skarpskyggni, og spennan helst óslitin allt til síðustu blaðsíðu. Steindór Ívarsson Völundur Útgefandi: Storytel og Sögur Útgáfa Áhugaverð og spennandi frásögn af óhugnanlegum atburðum sem gerast um miðja síðustu öld en enduróma inn í samtímann. Höfundur dregur fram sálarangist útskúfaðra og tengir nútímaviðburði á listilegan hátt við myrk illvirki fortíðarinnar, í áhrifaríkri og hugvitsamlega uppbyggðri sögu sem heldur lesandanum hugföngnum til enda. Dómnefnd skipuðu: Ásrún Matthíasdóttir, Mjöll Snæsdóttir og Unnar Geir Unnarsson, formaður dómnefndar. Tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka: Hildur Knútsdóttir, Embla Bachmann og Blær Guðmundsdóttir, myndhöfundur, Sigrún Eldjárn , Rán Flygernring og þeir Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni, myndhöfundur eru tilnefnd í flokki barna- og ungmennabóka.vísir Hildur Knútsdóttir Kasia og Magdalena Útgefandi: JPV útgáfa Sterk og hrífandi ástarsaga þar sem ungmenni takast á við erfiðar heimilisaðstæður sem fléttast saman við raunveruleika sem getur verið bæði flókinn og hættulegur. Embla Bachmann og Blær Guðmundsdóttir, myndhöfundur Kærókeppnin Útgefandi: Bókabeitan Hröð og spennandi saga full af fjöri og húmor sem fjallar um spaugilegar hliðar samkeppninar um fyrsta sambandið og hversu mikilvæg vináttan er. Sigrún Eldjárn Sigrún í safninu Útgefandi: Mál og menning Fróðlegt og forvitnilegt ferðalag um Þjóðminjasafn Íslands, séð með augum barns um æskustöðvar sem eiga sér engan líka. Lesandinn fær innsýn í lífið á safninu og í gegnum einstakar myndir og texta lifnar það við og vekur áhuga ungra lesenda á íslenskri sögu og menningu. Rán Flygernring Tjörnin Útgefandi: Angústúra Hugljúf og lærdómsrík saga sem snertir á málefnum eins og vináttu, samvinnu og umhverfi og hvað getur gerst þegar eitthvað fer úrskeiðis eða ekki verður lengur ráðið við aðstæður. Hinn einstaki myndheimur bókarinnar styrkir söguna og á stundum tala myndirnar sínu máli og gera texta óþarfan. Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni, myndhöfundur Vísindalæsi 5 - Kúkur, piss og prump Útgefandi: JPV útgáfa Fræðandi og skemmtileg bók um viðfangsefni sem við þekkjum öll en lítið er rætt um. Höfundi tekst með hnittnum og hispurslausum hætti að fræða lesandann um kunnugleg en viðkvæm málefni án þess að það verði vandræðalegt eða leiðinlegt auk þess að koma fram með áhugaverðan og oft skrítinn fróðleik. Dómnefnd skipuðu: Einar Eysteinsson, Kristín Ásta Ólafsdóttir, formaður dómnefndar og Sigríður Wöhler. Flokkur fræðibóka og rita almenns efnis: Guðjón Friðriksson Börn í Reykjavík Útgefandi: Mál og menning Vandað og tímabært verk sem veitir innsýn í hvernig þróun samfélagsins hafði áhrif á aðbúnað, menntun og lífshætti barna og hvernig þau öðluðust nýja stöðu sem fullgildir þjóðfélagsþegnar í gegnum þessar breytingar. Fallegar myndir bókarinnar gefa aukin hughrif og gera bókina aðgengilega fyrir fleiri aldurshópa. Ingibjörg Björnsdóttir Listdans á Íslandi Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag Glæsilegt og áhugavert verk þar sem höfundur miðlar af mikilli þekkingu og innsýn sögu þessarar fallegu og mikilvægu listgreinar á Íslandi, allt frá upphafi hennar. Þróun hennar í áranna rás er lýst og hvernig henni óx ásmegin fyrir tilverknað þeirra sem ruddu brautina af framsýni, listrænum metnaði og hugrekki. Anna Dröfn Ágústsdóttir Óli K. Útgefandi: Angústúra Fallegt verk um framsýnan frumkvöðul í þróun fjölmiðla á Íslandi. Ljósmyndir Óla K. voru áhrifamiklar og spegluðu samtímann, með bæði næmni listamannsins og nákvæmni fréttamannsins. Heimildavinna og texti höfundar gefa myndunum aukið vægi og setja sögu Íslands á 20. öld, hversdagslífs jafnt sem stórviðburða, í mikilvægt samhengi. Þórir Óskarsson Svipur brotanna - Líf og list Bjarna Thorarensen Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag Vel unnið og áferðarfallegt verk þar sem feikilegur fróðleikur er saman dreginn og settur fram á skýran og áhugaverðan hátt um þetta margslungna höfuðskáld okkar Íslendinga sem að mörgu leyti var á undan sinni samtíð. Verkið gefur einstaka sýn inn í líf hans og skoðanir og víðfeðm áhrif hans á mörgum sviðum þjóðfélagsins og gefur góðan vitnisburð um pólitískan og bókmenntalegan hugsunarhátt öndverðrar 19. aldar. Árni Heimir Ingólfsson Tónar útlaganna - Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag Einstakt verk um einstaka listamenn, sem lögðu öðrum fremur grunninn að því tónlistarlífi sem við njótum í dag á Íslandi. Ástríða höfundar fyrir viðfangsefninu er áþreifanleg, sem mikil og metnaðarfull heimildavinna ber vitni um. Verk sem á stöðugt erindi við okkur sem menningarþjóð og um leið áminning um mikilvægi og ávinning þess að taka vel á móti fólki sem þarf á aðstoð að halda. Dómnefnd skipuðu: Björn Teitsson, formaður dómnefndar, Kristín Ýr Pétursdóttir og Þorvaldur Sigurðsson. Áður fengið verðlaunin Meðal hinna tilnefndu eru ýmsir sem þegar hafa fengið Blóðdropann og hin Íslensku bókmenntaverðlaun. Þannig fékk Óskar Guðmundsson verðlaun fyrir Hilmu sem útgefin var 2015. Stefán Máni hefur þrívegis fengið Blóðdropann, fyrir Grimmd (2013), Húsið (2012) og Skipið (2006). Þá hefur Eva Björg Ægisdóttir fengið verðlaunin 2023 fyrir Heim fyrir myrkur. Ragnheiður Gestsdóttir hlaut verðlaunin fyrir Farangur (2021). Hildur Knútsdóttir hlaut verðlaun 2016 fyrir Vetrarhörkur, Sigrún Eldjárn fyrir Silfurlykilinn 2018 og Rán Flygenring sem myndhöfundur í Bannað að drepa eftir Gunnar Helgason. Guðjón Friðriksson hefur þrívegis hlotið verðlaunin: Fyrir Jón Sigurðsson – Ævisaga II 2003, Einar Benediktsson – 1997 og Bærinn vaknar 1870-1940 – 1991. Jón Kalman Stefánson hlaut verðlaunin 2005 fyrir Sumarljós og svo kemur nóttin og Gerður Kristný fyrir Blóðhófnir 2010.
Bókmenntir Íslensku bókmenntaverðlaunin Bókaútgáfa Mest lesið Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“ Lífið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið Lífið Hefndi sín með því að missa meydóminn Lífið „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Bíó og sjónvarp Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar Lífið „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Lífið Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lífið Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Lífið Spurt var um fyrirbæri sem Tommi á Búllunni framkvæmdi fyrst hér á landi Lífið Fleiri fréttir Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Hefndi sín með því að missa meydóminn Spurt var um fyrirbæri sem Tommi á Búllunni framkvæmdi fyrst hér á landi Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“ Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Draumaherbergi hjá fimmtugri og fabjúlöss Kynbomba og reynsluboltar í Melodifestivalen Söfnunarþáttur UNICEF í beinni útsendingu á þremur stöðvum í einu Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lyftu barninu upp eins og hann væri Simbi Lára og lyfjaprinsinn opinbera kynið Tilfinningar þvælast fyrir tiltektinni Frægar í fantaformi Ofurpar úr tennisheiminum á Íslandi Gervigreindin stýrði ferðinni Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Gervigreindin heillar Ólaf Ragnar upp úr skónum Reykti pabba sinn Er ESB og Sameinuðu þjóðunum stjórnað af valdaklíku? Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Sér lífið í nýju ljósi eftir móðurmissinn Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Má gæi úr Húsasmiðjunni vera á listanum þínum? Tara Sif og Elfar selja íbúðina Innlit í nýuppgerða íbúð Kára Sverris Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Sjá meira