Lífið

Svar Bents við hatursorðræðu gegn út­lendingum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ágúst Bent hefur nóg fyrir stafni.
Ágúst Bent hefur nóg fyrir stafni. Vísir/Vilhelm

Leikstjórinn og rapparinn Ágúst Bent Sigbertsson segir að undanfarið hafi verið ákveðin orðræða í þjóðfélaginu sem hafi beinst gegn innflytjendum. Hann leikstýrir nýrri auglýsingu á vegum Guide to Europe og segir þar um að ræða sitt svar gegn þeirri orðræðu sem hann segir ekki síst koma frá ráðamönnum. Hann hefur nóg fyrir stafni en Rottweiler gefur út nýtt lag á morgun.

Ágúst Bent, miklu þekktari sem Bent, segir að hann hafi upplifað sem svo að hann bæri skyldu til þess að nýta húmor í auglýsingum ferðaþjónustufyrirtækisins gegn téðri orðræðu.  Hann var fenginn til að leikstýra nýjustu herferð þess og segir orðræðuna aldrei í lagi.

„Sérstaklega þegar hún kemur frá ráðamönnum þjóðarinnar og ákvað ég því í samstarfi við Guide to Europe að henda í öfluga auglýsingaseríu þar sem eru stuttir prófílar af innflytjendum og fólki af erlendu bergi brotið. Þetta gerum við til að minna áhorfendur á hversu mikilvægt það er að hafa smá fjölbreytni í svona litlu samfélagi.“

Bent segist elska Ísland. Hann er handviss um að það væri hálfglötuð stemning hér á landi ef ekki væri fyrir alla þá hluti og allt fólkið sem upprunnið er í öðrum löndum. „Stórleikarinn Davíð Þór Katrínarson, sem er af erlendu bergi brotinn, les meistaralega og siglir skilaboðum þessarar mikilvægu auglýsingar í höfn,“ segir Bent.

Stórhljómsveitin XXX Rottweiler hundar eru svo að gefa út nýtt lag á morgun. Bent segist ekki geta beðið eftir því að leyfa alþjóð að heyra og ljóst að kappinn er með nóg af járnum í eldinum.

Klippa: Fögnum fjölbreytileikanum - auglýsing Guide to Iceland





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.