Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. nóvember 2024 17:00 Arsenal vann öruggan sigur í bráðfjörugum leik. Justin Setterfield/Getty Images Arsenal vann afar öruggan 5-2 sigur er liðið heimsótti West Ham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Óhætt er að segja að fyrri hálfleikurinn hafi verið hin mesta skemmtun og fyrsta markið lét sjá sig strax á tíundu mínútu þegar Gabriel skallaði hornspyrnu Bukayo Saka í netið. Leandro Trossard batt svo endahnútinn á snyrtilega spilamennsku gestanna þegar hann renndi boltanum í opið markið á 27. mínútu og á þeirri 34. bætti Martin Ødegaard þriðja markinu við af vítapunktinum. ODEGAARD FROM THE SPOT 🥶Saka wins the penalty and our captain steps up to find the bottom right corner ©⚒️ 0-3 ⚫️ (34) pic.twitter.com/R4BxkB0NvJ— Arsenal (@Arsenal) November 30, 2024 Tveimur mínútum síðar skoraði Kai Havertz svo fjórða mark Arsenal og útlitið heldur betur orðið svart fyrir Hamrana. Aaron Wan-Bissaka minnkaði hins vegar muninn fyrir heimamenn á 38. mínútu og tveimur mínútum síðar skoraði Ítalinn Emerson glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu og munurinn kominn niður í tvö mörk á einu bretti. Sjöunda mark fyrri hálfleiksins lét sig þó ekki vanta. Bukayo Saka lagði sín lóð á vogarskálarnar þegar hann skoraði af vítapunktinum á fimmtu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks og staðan í hálfleik því 5-2, Arsenal í vil. Eftir markasúpu í fyrri hálfleik létu mörkin á sér standa í þeim síðari og niðurstaðan varð 5-2 sigur Arsenal. Með sigrinum lyfti liðið sér upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 25 stig, sex stigum minna en topplið Liverpool. West Ham situr hins vegar í 14. sæti með 15 stig. Enski boltinn