Innherji

Gæti reynst „lang­hlaup“ að koma verð­bólgunni alla leið niður í mark­mið

Hörður Ægisson skrifar
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka, segist telja að stærri skrefin í fyrirséðum vaxtalækkunum peningastefnunefndar Seðlabankans verði framhlaðin í takti við hjöðnun verðbólgunnar, sem mun að stóru leyti koma fram á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka, segist telja að stærri skrefin í fyrirséðum vaxtalækkunum peningastefnunefndar Seðlabankans verði framhlaðin í takti við hjöðnun verðbólgunnar, sem mun að stóru leyti koma fram á fyrsta fjórðungi næsta árs. Kvika

Hægari hjöðnun undirliggjandi verðbólgu kann að benda til þess að mögulega muni „síðasta mílan“ reynast peningastefnunefnd óþægur ljár í þúfu, að mati hagfræðings Kviku banka, og það verði langhlaup að koma verðbólgunni alla leið niður í 2,5 prósenta markmið. Þrátt fyrir að verðbólgulækkunin í nóvember hafi verið minni en spár greinenda gerðu ráð fyrir þá breytir það ekki væntingum um allt að hundrað punkta vaxtalækkun á fyrstu tveimur fundum nefndarinnar á nýju ári.


Tengdar fréttir

Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra pró­senta raun­vaxta“

Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×