Viðskipti innlent

75 sagt upp í þremur hóp­upp­sögnum

Atli Ísleifsson skrifar
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir/Arnar

Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum nóvembermánuði þar sem 75 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinnumálastofnun.

Þar segir að uppsagnirnar hafi verið á sviðum ferðaskrifstofna, framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum, og loks við leigu á bifreiðum.

Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í janúar 2025.

Greint var frá því fyrr í mánuðinum að fimmtíu manns hefði verið sagt upp hjá Controlant. 

Veistu meira um málið? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.

Engar tilkynningar bárust um hópuppsagnir í október síðastliðnum.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10 prósent starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×