Lífið

Tónlistarkona selur í­búð í mið­bænum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Bjartey og Hrafn hafa sett íbúð sína við Leifsgötu á sölu.
Bjartey og Hrafn hafa sett íbúð sína við Leifsgötu á sölu.

Tónlistarkona Bjartey Sveinsdóttir og kærastinn hennar Hrafn Ingason hafa sett íbúð sína við Leifsgötu í Reykjavík á sölu. Um er að ræða fallega 60 fermetra eign í húsi sem var byggt árið 1937.

Bjartey er önnur tveggja meðlima í hljómsveitinni Ylja, ásamt Guðnýju Gígju Skjaldardóttur. Hljómsveitin hefur verið í uppáhaldi hjá mörgum tónlistarunnendum landsins, ekki síst núna í kringum jólin. 

Á tónleikum þeirra þann 19. desember næstkomandi munu þær færa jólaandann yfir gesti með þeirra fallega söng og hugljúfa gítarleik eins og þeim einum er lagið. 

Ylja

Miðbæjarperla með útsýni

Umrædd íbúð hefur verið endurnýjuð að miklu leyti og er á besta stað í miðborg Reykjavíkur.

„Nálægt miðbænum og allri almennri þjónustu. Svo Kósý að rölta á helstu kaffihús miðbæjarins, já og enginn taxi, þú getur rölt beint heim úr bænum. Svo skemmir ekki það er einkastæði bein fyrir utan húsið,“ skrifa Bjartey og deilir eigninni á Facebook.

Gengið er inn á rúmgóðan gang sem leiðir inn í allar vistaverur íbúðarinnar. Stofan er rúmgóð og björt með fallegu útsýni til austur. Eldhúsið er stúkað af með notalegum borðkróm. Þar er nýleg, hvít og rauð háglans innrétting með góðu vinnuplássi. 

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.