Körfubolti

Að­eins ein með „stærri“ þrennu í sögu deildarinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Madison Sutton átti frábær leik með Þórsliðinu í gær.
Madison Sutton átti frábær leik með Þórsliðinu í gær. Vísir/Diego

Þórskonan Madison Sutton var með svakalega þrennu í frábærum sigri sigri norðanliðsins í Bónus deild kvenna í körfubolta í gær.

Þórskonur héldu þá sigurgöngu sinni áfram á heimavelli með 106-85 sigri á Njarðvík.

Sutton var með 18 stig, 24 fráköst og 17 stoðsendingar í leiknum og það skilaði henni alls 50 framlagsstigum.

Sutton varð þar með aðeins önnur konan til að ná þremur tölfræðiþættum yfir sextán í sama leiknum.

Danielle Rodriguez var sú eina fyrir í hópnum en hún var með 30 stig, 19 fráköst og 17 stoðsendingar í leik með Stjörnunni á móti Njarðvík í janúar 2018.

Helena Sverrisdóttir náði tvisvar sinnum þremur tölfræðiþáttum yfir fimmtán en aldrei öllum yfir sextán.

  • Þrennur með alla tölfræðiþættina yfir fimmtán:
  • Danielle Rodriguez, Stjörnunni á móti Njarðvík 2018
  • (30 stig - 19 fráköst - 17 stoðsendingar)
  • Madison Anne Sutton, Þór Ak. á móti Njarðvík 2024
  • (30 stig - 19 fráköst - 17 stoðsendingar)
  • Helena Sverrisdóttir, Haukum á móti Hamri 2016
  • (30 stig - 20 fráköst - 15 stoðsendingar)
  • Helena Sverrisdóttir, Haukum á móti Skallagrími 2017
  • (23 stig - 16 fráköst - 15 stoðsendingar)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×