Sport

Mögu­lega kaldasta íþróttamynd ársins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Makynlee Cova stiller sér hér upp á miðri mynd í miðjum bardaga sínum.
Makynlee Cova stiller sér hér upp á miðri mynd í miðjum bardaga sínum. @makynleecova

Hroki eða hæfileikar. Kannski blanda af báðu. Glímustelpa sló í gegn eftir að myndir og myndband með henni fóru á mikið flug á netinu.

Bandaríska glímukonan Makynlee Cova er mjög öflug í hringnum og hún sýnir líka mótherjum sínum enga miskunn.

Glíma hennar um helgina vakti mikla athygli og þó ekki fyrir það að hún hafi unnið hana með sannfærandi hætti.

Myndir og myndband af Cova í miðjum bardaganum fór á mikið flug og þá sérstaklega á samfélagsmiðlinum TikTok.

Þar sést Cova vera búin að ná yfirtökunum í glímunni og hafði snúið mótherja sinn niður. Hún var búin að setja andstæðing sinn í lás og var bara að bíða eftir því að viðkomandi gæfi bardagann. Það sem hún gerði þá er ástæðan fyrir öllu fjaðrafokinu.

Glímustelpan stillti sér nefnilega upp á mynd í miðri glímu. Meira en þrettán milljónir hafa horft á myndbandið hennar á TikTok.

Margir hafa hrósað henni enda augljóslega mjög hæfileikaríkur glímumaður. Sumir hafa líka kallað þetta köldustu íþróttamynd ársins en aðrir hafa einnig talað um þetta sé hroki af hæsta stigi.

Cova er bandarísk landsliðskona og líkleg til afreka á næstu árum. Það er hætt við því að fleiri fylgist með henni í framtíðinni eftir þessar vinsældir hennar á samfélagsmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×