Körfubolti

Ís­lands­meistarar í fallsæti boða breytingar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sherif Ali Kenney hefur ekki skilað næstum því sama til Valsliðsins og aðrir Bandaríkjamenn eru að skila til sinna liða í deildinni.
Sherif Ali Kenney hefur ekki skilað næstum því sama til Valsliðsins og aðrir Bandaríkjamenn eru að skila til sinna liða í deildinni. Vísir/Diego

Valsmenn töpuðu öðrum leiknum í röð í gærkvöldi og um leið í fjórða sinn í síðustu fimm leikjum í Bónus deildinni í körfubolta. Fyrir vikið sitja Íslandsmeistarar í fallsæti deildarinnar.

Valsmenn voru líka deildarmeistarar í fyrra og unnu þá 18 af 22 leikjum sínum. Núna er liðið búið að tapa tveimur fleiri leikjum eða alls sex af níu leikjum.

Það eru þó töpin að undanförnu sem valda mestu áhyggjum því þau hafa öll komið á móti liðunum í neðri hlutanum. Valur tapaði þar á móti Hetti. ÍR og Haukum en ekkert þeirra liða situr í úrslitakeppnissæti eins og er.

Valsmenn eru með jafnmörg stig og bæði Höttur og ÍR en sitja í fallsætinu þar sem þeir eru 0-2 í innbyrðis leikjum á móti fyrrnefndum liðum.

Þegar þjálfari Vals var spurður út í leikmannabreytingar hjá liðinu þá var svarið skýrt og skorinort.

„Já það eru breytingar og það verður tilkynnt á morgun [í dag]. Eitthvað verður að gera en einn leikmaður inn er ekki að fara að breyta öllu. Við þurfum að grafa djúpt og finna einhverjar leiðir til að verða betra körfuboltalið og gera betur,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, í viðtali við Árna Jóhannsson eftir leikinn.

Bandaríkjamaðurinn Sherif Ali Kenney var aðeins með sjö stig og eina stoðsendingu í gær og hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik með félaginu. 

Valsmenn hafa hins vegar unnið báða leiki sína í vetur þar sem hann hefur skorað fimmtán stig eða meira (á móti Álftanesi og Keflavík).

Taiwo Badmus var frábær með 36 stig eins og hann hefur verið í allan vetur en það hefur bara ekki dugað til.

Liðið saknar auðvitað mikið Kristófers Acox sem er enn að vinna sig til baka eftir hnémeiðslin í oddaleiknum um titilinn síðasta vor.

Annað áhyggjuefni er að næstu þrír leikir Valsliðsins eru á móti Grindavík, Tindastól og Stjörnunni (eftir áramót). Verkefnið verður því afar krefjandi á næstunni ætli liðið að komast upp úr fallsætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×