Lífið

Villi Vill og Halla Vil­hjálms á Nínu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Nína Reykjavík býður upp á lágstemmda og notalega stemningu.
Nína Reykjavík býður upp á lágstemmda og notalega stemningu. Róbert Arnar

Það var líf og fjör á opnun skemmtistaðarins Nínu við Hverfisgötu á dögunum. Eigendur segja staðinn vera svar við kalli landsmanna um öðruvísi og lágstemmdari skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Margt var um manninn og ýmis þekkt andlit létu sjá sig.

Ólafur Alexander Ólafsson, framkvæmda- og rekstrarstjóri Nínu og næturklúbbsins Auto við Lækjargötu, segir að hann hafi fengið fjölda fyrirspurna í gegnum árin frá fólki sem óskaði eftir opnun staðar þar sem hægt væri að setjast niður og spjalla í lágstemmdara umhverfi, og jafnvel horfa á íþróttaviðburði. Hann segir Nína svar við því kalli.

Ólafur er einn fjögurra eigenda staðarins, ásamt Sigurði Stefáni, og viðskiptamönnunum Jóni Davíð Davíðssyni og Sindra Jenssyni, eigendum Húrra Reykjavíkur, Flatey Pizza og fleiri staða.

„Á Nínu mætast mismunandi heimar. Þar finnur þú risatjald þar sem íþróttakappleikir verða varpaðir, diskókúlu sem glitrar og frábært úrval kokteila og annarra drykkja. Það sem okkur hefur fundist vanta í barsenunni í Reykjavík er staður þar sem hægt er að horfa á íþróttir í góðu andrúmslofti og fallegu umhverfi. Við munum leggja mikla áherslu á að sýna alla stærstu íþróttaviðburði sem eru á dagskrá hverju sinni. Þegar sportið er yfirstaðið og kvölda tekur, þá lækkum við ljósin, hækkum tónlistina og gjörbreytum stemningunni,“ segir Ólafur og bætir við: „Við erum að lenda eftir fyrstu helgina okkar og gekk hún vonum framar. Fólk skemmti sér konunglega og þó við segjum sjálfir frá tókst mjög vel til að fanga þessa stemningu sem við erum að lýsa.“

Ljósmyndarinn Róbert Arnar mætti á opnuna og myndaði stemninguna meðal gesta.

Róbert Arnar

Róbert Arnar

Róbert Arnar

Róbert Arnar

Róbert Arnar

Róbert Arnar

Róbert Arnar

Róbert Arnar

Róbert Arnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.