Lífið

Það heitasta fyrir jólin: Heimagerður andlitsmaski og klútar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Allt um það heitasta fyrir þessi jól.
Allt um það heitasta fyrir þessi jól.

Í Íslandi í dag í vikunni voru tískustraumar ársins 2024 skoðaðir en þar ræddi Vala Matt við sérfræðinga á því sviði.

Þar kom meðal annars fram að slæður eins og forseti Íslands Halla Tómasdóttir er oft með og hafa slegið aftur í gegn.

Tískufrömuðurinn Elísabet Gunnarsdóttir sýndi Völu til að mynda hvernig hún notar slæður á skemmtilegan hátt.

Karlmenn geta einnig gengið um með klúta eins og stjörnuljósmyndarinn Kári Sverris bendir á.

Óhefðbundnar jólagjafir virðast vera í tísku fyrir þessi jól. Gjafakort fyrir samveru sem margir geta nýtt sér. Sálfræðingurinn Edda Björg Sigurðardóttir og frumkvöðullinn Kristín Ýr Pétursdóttir fara vel yfir gjafir í þeim dúr.

Og þar sem nú rennur brátt upp tími mikilla jóla og aðventukræsinga þá eru skoðaðar leiðir til að minnka bólgur í andliti eftir salt og sykurát. Læknirinn Lára G. Sigurðardóttir sýnir hvernig við getum gert heimagerðan andlitsmaska sem frískar upp á húðina.

Að lokum fengu áhorfendur Stöðvar 2 að sjá nýjustu hártískuna með Róbert Michael O´Neill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.