Lífið

Heitir Vil­hjálmur eins og pabbi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Edda Sif og Vilhjálmur kynntust innan veggja Rúv.
Edda Sif og Vilhjálmur kynntust innan veggja Rúv.

Sonur íþróttafréttakonunnar, Eddu Sifjar Pálsdóttur og Vil­hjálms Siggeirssonar verk­efna­stjóri hjá Há­skól­an­um í Reykja­vík, er kominn með nafn. Drengnum var gefið nafnið Vilhjálmur Bessi við hátíðlega athöfn á dögunum. 

Parið greinir frá nafngiftinni í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum. Drengurinn komin í heiminn þann 2. október síðastliðinn Fyrir eiga þau Magnús sem er fjögurra ára gamall.

Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson stýrði athöfninni sem fór fram í heimahúsi. Systur Eddu Sifjar, þær Eir og Hlín Pálsdætur eru guðmæður Vilhjálms litla.

Edda Sif og Vilhjálmur kynntust innan veggja RÚV en voru upphaflega vinir áður en ástin tók völd. Þau trúlofuðu sig þann 9. október 2022. 

Vilhjálmur starfar sem verkefnastjóri stafrænnar kennslu í Háskólanum í Reykjavík. Edda hefur heillað þjóðina með frammistöðu sinni á skjánum sem íþróttafréttakona á RÚV og einnig  unnið sem dagskrárgerðarkona í Landanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.