Lífið

Dætur Jóns og Frið­riks Dórs stálu senunni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Friðrik Dór, Ásthildur, Jón og Mjöll.
Friðrik Dór, Ásthildur, Jón og Mjöll.

Gríðarleg stemning var í Laugardalshöllinni um helgina þegar strákabandið IceGuys skemmti um 25 þúsund gestum á samtals fimm tónleikum. Þetta er annað árið í röð sem þeir félagar Frikki Dór, Aron Can, Herra Hnetusmjör, Jón Jónsson og Rúrik Gíslason halda jólatónleika sína.

Strákarnir voru ekki einir á sviðinu um helgina, en flottur hópur dansara var ómissandi hluti af þessari listrænu heild sem tónleikarnir voru. 

Dætur Jóns og Friðriks Dórs, Mjöll Jónsdóttir 10 ára og Ásthildur Friðriksdóttir 11 ára, voru þar á meðal en báðar æfa þær dans og fimleika af miklu kappi. Þær voru fremstar í flokki í laginu Krumla á þrennum fjölskyldutónleikum sveitarinnar, föstudag og laugardag, og gáfu feðrum sínum ekkert eftir á sviðinu.

Stella Rósenkranz ásamt Mjöll og Ásthildi.

„Okkur datt þetta bara í hug að nýta tækifærið þar sem það er ekki endilega oft sem við getum boðið þeim upp á þetta að stökkva upp á svið á svona viðburði og vildum bara leyfa þeim að koma með okkur,“ segir Friðrik Dór í samtali við Vísi. 

„Okkur fannst ótrúlega gaman að fá að deila þessu með þeim.“

Friðrik segir að þetta hafi verið í fyrsta en vonandi ekki síðasta skipti sem dætur þeirra koma fram með þeim bræðrum. „Þær voru þarna fremst á rampinu og frontuðu allt dæmið sem var alveg geggjað. Það var líka gaman að sýna öllum krökkunum að vera með krakka á sviðinu,“ Friðrik.

Spurður hvort þær hafi verið stressaðar áður en þær stigu á svið segir Friðrik að þær hafi verið furðu rólegar. „Þær voru alveg með smá fiðrildi í maganum fyrir fyrsta showið en leystu þetta ótúlega vel,“ segir hann og leynir stoltið sér ekki.

Mjöll og Ásthildur dönsuðu við lagið Krumla á fjölskyldutónleikum IceGuys um helgina.Síminn/Thelma Arngríms

Fagmennska fram í fingurgóma

Friðrik og Jón fara báðir fögrum orðum um Stellu Rósenkranz, leikstjóra, danshöfund og listræns stjórnanda tónleikanna, og segja hana hafa tekið afar vel utan um dætur þeirra. „Hún bæði lét þeim líða vel og trítaði þær eins og krakka, en gaf þeim á sama tíma innsýn inn í alvöru showtime og voru með í eyrunum og eins og við,“ segir Jón.

Friðrik tekur undir orð Jóns og lýsir henni sem mikilli fagmanneskju: „ Hún er þaulvön að vinna með svona ungum dönsurum og var virkilega góð við þær. Á sama tíma kenndi hún þeim á þetta umhverfi af mikilli fagmennsku,“ segir Friðrik.

Alvöru hopp. 

Stemningin var engri líkt og meðfylgjandi myndir gefa til kynna. 

Glæsilegur danshópur frá Dansstudio World Class.Róbert Arnar

IceGuys fengu gesti til að lýsa upp salinn með símum sínum.Róbert Arnar

Þessar flottu vinkonur mættu í stil.Róbert Arnar

Móheiður og Stella í góðum félagsskap.Róbert Arnar

Tónleikagestir sungu með öllum lögunum.Róbert Arnar

Þessar skvísur voru fremstar og til í kvöldið.Róbert Arnar

Prúðbúnar í pelsum.Róbert Arnar

Það er stór hópur á bakvið svona flotta tónleika.Róbert Arnar

Þessar skvísur biður spenntar eftir stjörnum kvöldsins.Róbert Arnar

Glæsilegar vinkonur!Róbert Arnar

Móheiður Guðmundsdóttir og Stella Rósenkranz.Róbert Arnar

Þessar vinkonur létu sig ekki vanta!Róbert Arnar

Eva Ruza var manna hressust enda mikill áðdáandi strákasveita.Róbert Arnar

Þessi er með klæðaburðinn á hreinu.Róbert Arnar

Andrea, Eydís, Rakel og Sigríður.Róbert Arnar

Fólkið á bakvið barinn.Róbert Arnar

Einn mætti í jólapeysu enda um jólatónleika að ræða.Róbert Arnar

Sylvia Lovetank búningahönnuður.Róbert Arnar

Bullandi stemning.Róbert Arnar

Alvöru lýsing. Róbert Arnar

Anna Guðný og vinkona mættu hressar.Róbert Arnar

Rakel, Inga Heiða, Þórunn Elva og vinkona þeirra virtust skemmta sér vel.Róbert Arnar

Stemningin var engri lik!Róbert Arnar

Sexy Rú tók lagið.Róbert Arnar

Brosa! Róbert Arnar

Bræðraástin bræddi áhorfendur.Síminn/Thelma Arngríms

Aron Can heillaði dömurnar upp úr skónum.

Dóra Hrund og vinkona skáluðu fyrir kvöldinu.Síminn/Thelma Arngríms

Gunnþórunn þeytti skífum.Síminn/Thelma Arngríms

Börnin voru með stjörnur í augunum og sungu með hverju einasta lagi.Síminn/Thelma Arngríms

Það var endalaus gleði í loftinu. Síminn/Thelma Arngríms

Friðrik heilsaði upp á aðdáendur.Síminn/Thelma Arngríms

Myndakassinn stóð fyrir sínu.Síminn/Thelma Arngríms

Þetta voru alvöru dansar. Síminn/Thelma Arngríms

IceGuys hatturinn var vinsæll fylgihlutur.Síminn/Thelma Arngríms

Salurinn tryllist þegar drengirnir komu fram í hvítum dressum.Síminn/Thelma Arngríms

Meira! Meira! Meira! Síminn/Thelma Arngríms

Pósa. Síminn/Thelma Arngríms

Krakkarnir elska Iceguys. Síminn/Thelma Arngríms

Áhorfendur sungu með af mikilli innlifun.Síminn/Thelma Arngríms

Gretta! Síminn/Thelma Arngríms

Halló!Síminn/Thelma Arngríms

Gleði! Síminn/Thelma Arngríms






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.