Lífið

Sonur Gunn­hildar og Erin kominn með nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Knattspyrnukonurnar Gunnhildur og Erin gengu í hjónaband á nýársdag í fyrra.
Knattspyrnukonurnar Gunnhildur og Erin gengu í hjónaband á nýársdag í fyrra.

Knattspyrnukonurnar, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin McLeod, hafa gefið syni sínum nafn. Drengurinn fékk nafnið Baldwin Leó Mcleod

Drengurinn, sem er þeirra fyrsta barn saman, kom í heiminn þann 19. október síðastliðinn. Gunnhildur greindi frá komu drengsins í færslu á Instagram. „Vika með þér. Litli karl Mcleod,“ skrifar hún í færslunni.

Gunnhildur Yrsa og Erin gengu í hjónaband á nýársdag í fyrra. Gunnhildur Yrsa gekk aftur í raðir Stjörnunnar í fyrra eftir áralanga dvöl í atvinnumennsku. Hún lék 102 landsleiki fyrir Ísland á árunum 2011-23.

Erin lék fyrst með Stjörnunni sumarið 2020 en kom svo aftur til félagsins í fyrra. Hún er fyrrverandi landsliðsmarkvörður Kanada og á 119 landsleiki á ferilskránni. Erin var í leikmannahópi kanadíska landsliðsins sem varð Ólympíumeistari 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.