Veður

Snjó­mokstur hófst klukkan fjögur í nótt

Lovísa Arnardóttir skrifar
Starfsmenn vetrarþjónustu Reykjavíkur byrjuðu að moka snjó klukkan fjögur í nótt.
Starfsmenn vetrarþjónustu Reykjavíkur byrjuðu að moka snjó klukkan fjögur í nótt. Vísir/Vilhelm

Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu í Reykjavíkurborg segir snjómokstur hafa gengið vel í morgun. Færðin sé tiltölulega góð í borginni.

Töluverð snjókoma blasti við íbúum höfuðborgarsvæðisins í morgun en viðbúið er að þar hætti að snjóa þegar líða tekur á morguninn. Veðurstofa hefur hvatt vegfarendur til að kynna sér fréttir af færð og veðri áður en lagt er af stað í ferðalög en nýfallin snjór og hvassviðri gæti til að mynda valdið skafrenningi og lélegu skyggni, einkum í kvöld og í fyrramálið.

Eiður Fannar segir starfsfólk vetrarþjónustunnar gera ráð fyrir því að snjóbakkinn fari yfir í dag og að moksturinn eigi því að ganga vel.

Hann segir fyrstu menn hafa byrjað um klukkan fjögur í nótt. Snjókoman hafi svo hafist um klukkan fimm.

Hann segir góða færð um borgina fyrir þau sem eru á góðum dekkjum.

„Færð er tiltölulega góð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×