Veður

Hvessir sunnan- og austan­til í kvöld

Atli Ísleifsson skrifar
Síðdegis nálgast skil úr suðri og mun snúast í vaxandi austan- og norðaustanátt.
Síðdegis nálgast skil úr suðri og mun snúast í vaxandi austan- og norðaustanátt. Vísir/Vilhelm

Lægðin sem olli snjókomunni á Norður- og Austurlandi í nótt fjarlægist nú landið og má reikna með fremur hægum vindi á landinu í dag. Víða eru líkur á stöku éljum og má reikna með frosti á bilinu núll til átta stig. Það hvessir hins vegar í kvöld og hafa verið gefnar út gular viðvaranir sunnan- og austantil vegna hvassviðris.

Á vef Veðurstofunnar segir að síðdegis nálgist skil úr suðri og mun snúast í vaxandi austan- og norðaustanátt. Víða verður allhvass eða hvass vindur og snjókoma seint í kvöld og nótt, en stormur um tíma syðst á landinu.

Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi, Suðausturlandi og á Austfjörðum vegna hvassviðris eða storms seint í kvöld og eru þær í gildi til morguns. Má reikna með snjókomu eða slydda á láglendi með lélegu skyggni og erfiðum aksturskilyrðum.

„Snjókoman verður köflóttari á morgun og það degur úr vindi fyrir austan. Vægt frost, en frostlaust við suðurströndina þar sem úrkoman fellur líklega að hluta sem rigning eða slydda.

Það er litlar breytingar að sjá til sunnudags, en þó er útlit fyrir að það slái aftur í storm syðst á landinu.

Færð gæti því spillst allvíða um helgina og eru þeir sem hyggja á ferðalög hvattir til að kynna sér aðstæður á vegum áður en lagt er af stað,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðaustan og austan 13-23 m/s, hvassast syðst á landinu. Snjókoma með köflum og vægt frost, en frostlaust við suðurströndina.

Á sunnudag: Norðaustan og austan 10-18, en 18-23 syðst. Snjókoma með köflum, en úrkomuminna norðanlands. Hiti breytist lítið.

Á mánudag: Norðaustan 8-18, hvassast suðaustantil. Dálítil snjókoma, en þurrt að kalla vestanlands. Frost 0 til 7 stig.

Á þriðjudag: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Herðir á frosti.

Á miðvikudag: Suðaustlæg átt og hlýnar með dálitlum skúrum eða éljum, en þurrt og áfram kalt norðan- og austanlands.

Á fimmtudag: Útlit fyrir austan- og suðaustanátt með dálítilli rigningu eða slyddu, en þurru veðri norðan- og vestanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×