Flest, ef ekki allt, fólk með typpi (stundum talað um limhafa) lendir stökum sinnum í risvanda. Við alls konar aðstæður getur frammistöðukvíði eða líðan okkar þvælst fyrir líkamlegri örvun. Til dæmis ef þú ert að stunda kynlíf í fyrsta sinn eftir skilnað, ferð heim með manneskju sem þú ert mega skotinn í og vilt heldur betur sanna þig eða eftir langt kvöld þar sem þreyta eða áfengisneysla dregur úr þér.
Þar sem ég hef engar frekari upplýsingar um þig, kæri lesandi, ætla ég að svara þessu frekar almennt sem vonandi í leiðinni nýtist sem flestum! Risvandi, sem einnig er kallaður stinningarvandi eða ristruflanir, eru erfiðleikar með að ná, eða viðhalda stinningu í kynlífi eða við sjálfsfróun. Risvandi er mjög algengur og getur haft áhrif á fólk á öllum aldri en verður algengari með aldrinum.
Kynlífið með Aldísi, sálfræðingi og kynlífsráðgjafa, er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Aldís lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Aldísi spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni.

Nýlegar rannsóknir benda til þess að allt að 40% limhafa yfir fertugt og allt að 70% limhafa yfir sjötugt upplifa einhvers konar risvanda. Risvandi getur verið aðstæðubundinn en einnig geta ýmsir heilsutengdir þættir stuðlað að risvanda til dæmis hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki, yfirþyngd, reykingar og streita.

Vandinn getur verið af andlegum eða líkamlegum toga
Ef þú vaknar með morgunris, átt síður í erfiðleikum með ris í sjálfsfróun en lendir stundum eða oft í risvanda í kynlífi er sennilegt að líðan eða frammistöðukvíði liggi að baki. Sumir tengja risvanda við tilteknar aðstæður eins og þegar smokkur er settur á liminn, þegar ágreiningur kemur upp í sambandinu, þegar viðkomandi er undir miklu álagi, er að takast á við slaka sjálfsmynd eða fyrri áföll.
Ef þú upplifir skyndilega breytingu á risi, ert skyndilega hættur að vaknar með morgunris, nærð ekki að viðhalda stinningu í sjálfsfróun og kynlífi er best að byrja á því að tala við heimilislækni. Gott er að skoða með þínum lækni hvaða líkamlegu þættir gætu verið að hafa áhrif á stinningu í kynlífi, en ýmislegt getur legið þar að baki.

Hér eru nokkur ráð:
- Skoðaðu hvaða hugmyndir þú hefur um kynlíf og þína frammistöðu í kynlífi. Oft er handritið um hvernig kynlíf “á að vera” að þvælast fyrir! Ef þér finnst að þú eigir nánast alltaf að vera til í kynlíf og að kynlíf snúist um þína frammistöðu, ertu líklegri til að lenda í risvanda.
- Talaðu um vandann við þinn maka/bólfélaga. Slíkt samtal veitir bæði stuðning og aukna nánd sem er hjálplegt til að draga úr risvanda.
- Köstum handritinu burt! Kynlíf snýst um unað og nánd en ekki frammistöðu. Með því að færa fókusinn yfir á unað getum við beint athygli okkar að því sem við skynjun og finnum í stað þess að festast í hugsunum um ris eða frammistöðu.
- Andaðu djúpt! Það er mikilvægt að róa taugakerfið niður og settu svo athygli þína á augnablikið. Hvaða hljóð heyri ég? Hvaða lykt finn ég? Hvað er kynæsandi við þetta augnablik?
- Vertu flink/t/ur í öðru! Með því setja minni fókus á samfarir er hægt að færa sig yfir í aðra kynhegðun ef risið dettur niður. Að kunna margar leiðir til að veita og þiggja unað án þess að stunda samfarir á sennilega líka bara eftir að bæta kynlífið ykkar!
- Ef búið er að útiloka líkamlegar ástæður og ekki næst árangur með því að draga úr streitu, vinna markvisst í því að draga úr pressunni og auka vellíðan og ró í kynlífi er hægt að leita til kynlífsráðgjafa eða kynfræðings.
- Að lokum er hægt að ræða við lækni og skoða hvort stinningarlyf gætu hjálpað en ég mæli yfirleitt með því að reyna alls konar annað fyrst!
Gangi þér vel <3
Finna má fleiri svör Aldísar og allar hennar greinar á einum stað á Vísi.