Lífið

Troða í sig vængjum og horfa á aug­lýsingar sem kosta milljarð

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Á þessum degi er vinsælt að gúffa í sig vængi og annað góðgæti á meðan leikurinn stendur yfir.
Á þessum degi er vinsælt að gúffa í sig vængi og annað góðgæti á meðan leikurinn stendur yfir. William Thomas Cain/Getty

Einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins vestanhafs, Superbowl eða Ofurskálin fer fram í kvöld. Viðburðinum fylgir mikil neysla víða um heim og hafa auglýsendur borgað tæpan milljarð fyrir þrjátíu sekúndur á skjánum. 

Ofurskálin er árviss viðburður en um er að ræða úrslitaleik í NFL deildinni í Bandaríkjunum og eru það stórliðin Philadelphia Eagles og Kansas City Chiefs sem mætast. Viðburðurinn fer fram annan sunnudag hvers febrúarmánaðar og troða áhorfendur þá í sig kjúklingavængjum, snakki og öðru góðgæti, vaka fram á nótt og fylgjast með íburðarmiklum auglýsingum og skemmtiatriðum á skjánum.

Auglýsingarnar sem sýndar eru fyrir leik og í hálfleik vekja alltaf mikla athygli og kostar auglýsingaplássið skildinginn enda dreifingin mikil.

Öll pláss seldust upp

Í ár þurfa auglýsendur að greiða tæpan milljarð íslenskra króna vilji þeir fá birtingu fyrir þrjátíu sekúndna pláss á skjánum. Verðið hefur þó ekki fælt fyrirtæki frá en öll auglýsingaplássin seldust upp í nóvember og eru Google, Doritos og Booking á meðal auglýsenda.

Bandaríski rapparinn Kendrick Lamar mun troða upp í hálfleik en ár hvert keppast þeir tónlistarmenn sem treyst er fyrir verkefninu við að toppa frammistöðu síðasta árs með íburðarmikilli sýningu.

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur boðað komu sína á leikinn í kvöld og verður þar með fyrsti sitjandi forseti landsins sem mætir á Ofurskálina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.