Lífið

Logi Pedro selur Vesturbæjarslotið

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Logi Pedro og Hallveig Hafstað hafa sett íbúð sína á Meistaravöllum á sölu.
Logi Pedro og Hallveig Hafstað hafa sett íbúð sína á Meistaravöllum á sölu. SAMSETT

Tónlistarmaðurinn og hönnuðurinn Logi Pedro og konan hans Hallveig Hafstað ráðgjafi hafa sett íbúð sína á Meistaravöllum á sölu. Er um að ræða rúmlega 130 fermetra eign í hjarta Vesturbæjar og ásett verð er tæpar 94 milljónir. 

Íbúðarblokkin er teiknuð af Kjartani Sveinssyni arkítekt. Á fasteignasíðu Vísis stendur að íbúðin, sem er staðsett á þriðju hæð, sé vel skipulögð og með þremur svefnherbergjum. 

Logi Pedro hefur vakið athygli sem hönnuður að undanförnu og gaf nýverið út sína fyrstu hönnunarlínu undir nafninu Lopedro. 

Eigninni fylgir bílskúr þar sem Logi hafði komið sér upp um góða vinnuaðstöðu fyrir listsköpunina. 

Rúmgóður bílskúr fylgir eigninni sem hægt er að nýta í margt.Palsson Fasteignasala

Logi birti færslu á Facebook í morgun þar sem hann skrifar:

„Við vorum að setja yndislegu íbúðina okkar á sölu. Húsið er einstakt Kjartanshús sem hefur fengið gott og reglulegt viðhald undanfarin ár. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum, veglegri stofu og henni fylgir bílskúr sem ég hef notað sem vinnustofu undanfarið ár. En fyrst og fremst býr yndislegt fólk í húsinu og hér er mjög góður andi.“

Hér má sjá fleiri myndir af íbúðinni: 

Íbúðin er fallega innréttuð.Palsson Fasteignasala
Rúmgóð, opin og björt stofa.Palsson Fasteignasala
Stílhreint svefnherbergi og útgengt á rúmgóðar svalir.Palsson Fasteignasala
Íbúðin er á þriðju hæð á Meistaravöllum 7.Palsson Fasteignasala
Logi og Hallveig eru með listrænt skreytta veggi en veggjaplássið er gott í íbúðinni.Palsson Fasteignasala
Á stólnum til hægri má sjá teppi úr hönnun Loga.Palsson Fasteignasala





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.