Lífið

Baltasar, Sunn­eva og Kilja litla njóta lífsins

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
FotoJet - 2025-02-15T135602.512
Instagram/Sunneva Ása Weisshappel

Leikstjórinn Baltasar Kormákur og myndlistakonan og leikmyndahönnuðurinn Sunneva Ása Weisshappel njóta lífsins ásamt ungu dóttur sinni Kilju Kormáki. Í tilefni dags heilags Valentínusar í gær birti Sunneva fyrstu myndirnar af fjölskyldunni litlu á ferðalagi um heiminn.

Parið eignaðist stúlku þann fimmta ágúst síðastliðinn og fékk hún nafnið Kilja Kormákur. Þau sóttu um leyfi fyrir nafninu hjá mannanafnanefnd og var það samþykkt þriðja september síðastliðinn. Kilja litla er fyrsta barn Sunnevu en Baltasar á fjögur börn fyrir, þau Ingibjörgu Sóllilju, Baltasar Breka, Storm Jón Kormák og Pálma Kormák.

Í veðurblíðuna má ráða að þessi mynd hafi verið tekin í útlandinu góða.Instagram/Sunneva Ása Weisshappel

Sunneva og Baltasar byrjuðu saman í ársbyrjun 2019. Þau hafa unnið saman að alls konar verkefnum, þeirra á meðal þáttaröðinni Kötlu, þriðju þáttaröð Ófærðar og kvikmyndinni Snertingu. Baltasar leikstýrði og Sunneva annaðist leikmyndir.

Á Valentínusardeginum í gær birti Sunneva færslur á hringrásina að fagna sínum Valentínusi og fjölskyldunni nýju.

Falleg lítil fjölskylda.Instagram/Sunneva Ása Weisshappel
Heilögum Valentínusi var fagnað í gær.Instagram/Sunneva Ása Weisshappel





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.